Um Hamingjuna
Við teljum okkur trú um að lífið verði betra eftir að við:göngum í hjónaband, eignumst barn og síðan þegar við eignumst annað barn. Síðan verðum við ómöguleg yfir því að börnin eru enn svo ung og teljum að við verðum miklu ánægðari er þau eldast.
Þegar það gerist verðum við pirruð á því að þurfa að takast á við unglingana okkar og teljum okkur verða ánægðari þegar þeir vaxa upp úr því aldursskeiði.
Við teljum okkur trú um að við munum öðlast meiri lífsfyllingu loksins þegar: maki okkar tekur sig taki, þegar við fáum betri bíl, þegar við komumst í almennilegt frí eða þegar við setjumst í helgan stein.Sannleikurinn er sá að það er ekki til betri tími til að verða hamingjusamur heldur en einmitt núna!........ Því ef ekki núna..... hvenær þá? Lífið er alltaf fullt af vandamálum. Það er best að horfast í augu við það og ákveða að vera hamingusamur þrátt fyrir það. Alfred D. Souza sagði eitt sinn: " Lengi vel fannst mér alltaf sem lífið væri rétt að byrja - þetta eina sanna líf. En það var alltaf eitthvað sem stóð í vegi fyrir því, eitthvað sem þurfti að yfirstíga fyrst, einhver ókláruð mál, tími sem þurfti að eyða í eitthvað, ógreiddar skuldir. Síðan myndi lífið byrja. Dag einn rann það upp fyrir mér að allar þessar hindranir voru lífið sjálft." Þetta viðhorf hjálpar okkur að skilja að það er engin leið að hamingjunni. Hamingjan er leiðin. Njótum hverrar stundar sem við eigum. Njótum hennar enn frekar þegar okkur tekst að deila henni með öðrum sem er nógu sérstakur til að verja tíma okkar með . og munum, að tíminn bíður ekki eftir neinum. Áttu að bíða þar til þú hefur lokið námi eða þar til þú hefur hafið nám, þar til þú hefur misst fimm kíló eða bætt á þig fimm kílóum, þar til þú hefur eignast börn eða þar til þau flytjast að heiman, þar til þú byrjar að vinna eða þar til þú sest í helgan stein, þar til þú giftist eða þar til þú skilur, þar til á föstudagskvöld, þar til á sunnudagsmorgun, þar til þú færð þér nýjan bíl eða hús, þar til þú hefur borgað upp bílinn eða húsið, þar til í vor, þar til í sumar, þar til í haust, þar til í vetur, þar til lagið þitt byrjar, þar til þú ert búin að fá þér í glas, þar til runnið er af þér, þar til þú deyrð, þar til þú fæðist á ný . til þess eins að ákveða að það er enginn tími betri til að vera hamingjusamur en einmitt núna!
Hamingjan er ferðalag ekki áfangastaður
Til umhugsunar að lokum!
"Sinntu starfi þínu eins og þú þarfnist ekki peninganna."
"Elskaðu eins og þú hafir aldrei verið særð(ur)."
"Dansaðu eins og enginn sjái til þín."
Finnst þér janúar og febrúar leiðinlegir mánuðir?
Fyrir mörgum eru janúar og febrúar oft leiðinlegustu mánuðir ársins. Fólk kemur í vinnu í byrjun janúar uppgefið bæði andlega og líkamlega. Það eru ekki fleiri jólaboð, ekki fleiri slökunardagar í vinnunni, ekki meira frí. Hvernig komumst við aftur á jörðina og rennum okkur ljúft inn í nýtt ár með áhuga og full af orku.
Notaðu janúar og febrúar til þess að hugsa og plana fram í tímann. Settu fókusinn á persónuleg og vinnutengd markmið. Skoðaðu aðferðir þínar til að ná markmiðum þínum og skoðaðu hvað er að virka og hvað ekki. Þegar þú byrjar að plana þá færðu kraftinn á endanum.
Ertu hamingjusöm/samur Hvaða spurningu ættir þú að beina að þér? Hér fyrir ofan er búið að benda á, að það að setja sér markmið er mjög mikilvægur hluti, þá má líka líta á annað sem skiptir miklu máli. Hugsarðu um hamingjuna? Ertu að sýna og nota alla þína kosti? Ertu stöðugt að storka sjálfum þér og vaxa? Ferðu fram úr rúminu á morgnana ánægð/ur til vinnu Leiðist þér þín daglega rútína? Þegar við erum í fríi er gott að hugsa aðeins um hver við erum og hvernig við viljum lifa lífinu. Líttu á sjálfa(n) þig sem fyrirtæki í rekstri! Alltaf um hver árslok þarf að líta yfir liðið ár og meta stöðuna á því hvað gekk vel og hvað illa. Ertu ánægð/ur með sambandið (hjónabandið)? Ertu að eyða nógu miklum tíma í fjölskylduna og vini? Fékkstu stöðuhækkun eða kauphækkun? Líður þér eins og þú hafir stjórn á örlögum þínum? Hugsaðu um þessa hluti og ýttu svo á start hnappinn!
Einn af þeim hlutum sem draga okkur niður er þegar við vitum ekki hvað við viljum. Það sem gerir janúar og oft febrúar svona leiðinlega er að það er komið nýtt ár en við erum enn að gera nákvæmlega sömu hlutina og á síðasta ári. Rannsóknir sýna að við erum hamingjusömust þegar við höfum að einhverju ákveðnu að stefna að. Eitthvað markmið sem við sjálf höfum sett okkur. Það er ekkert gaman að fljóta bara í gegnum lífið ,þú verður að synda! Í stað þess að vera óánægð/ur yfir hlutunum, gerðu eitthvað til að breyta þeim. Einfaldir hlutir eins og að fá sér áhugamál, vinna sjálfboðavinnu, eða gera eitthvað annað en þú gerir í dag eftir vinnu. Þú getur ákveðið að þrjá daga í viku þá hættir þú klukkan 17,00 í vinnunni! Markmiðið þarf að hafa þau áhrif að það dregur þig upp úr þessu janúar þunglyndi og gerir þig eftirvæntingarsama/n á það sem ókomið er. Mundu bara að skrifa markmiðin niður á blað, ef þú getur það ekki þá eru þau ekki nógu skýr. Finnst þér þetta hljóma of einfalt? Það er heljarinnar vinna að taka sjálfan sig í gegn og horfa heiðarlega á sjálfan sig. Skilningur á því hvað þú vilt í raun og veru er lykillinn.
Tekið af kærleiksvef Júlla |