Fékk þetta sent frá góðri vinkonu. Langaði að deila þessu með ykkur. Rósin
Á fyrsta skóladegi mínum í framhaldsnámi hvatti kennarinn okkur til að kynnast nýju fólki gefa okkur á tal við ókunnuga og opna fyrir nýja vináttu og vingjarnleika.
Ég stóð upp og leit í kringum mig en þá fann ég fyrir hönd á öxlinni minni og leit við. Þarna stóð mjög gömul kona sem brosti eins og sólin framan í mig; Hæ myndarlegi strákur!, sagði hún. Ég heiti Rósa, ég er 87 ára. Má ég faðma þig? Ég hló og jánkaði og hún kreisti mig að sér.
Hvers vegna ertu í skóla svona fullorðin?, spurði ég. Hún svaraði glaðlega; Því ég ætla að ná mér í ríkan eiginmann hérna og eignast með honum nokkur börn! Nei, í alvöru? spurði ég. Hún svaraði; Mig langaði alltaf í stúdentspróf og nú læt ég þann draum rætast! Við gengum saman um ganga skólans, spjölluðum og urðum strax perluvinir.
Eftir þetta hittumst við alltaf, alla daga og töluðum út í eitt. Mér fannst frábært að hlusta á hana og læra af henni. Hún varð vinsælasti nemandi skólans, alls staðar geislaði hún vingjarnleika sínum til fólks. Hún elskaði að punta sig og naut sín í félagsskap okkar unga fólksins. Í lok skólaársins vildum við nemendurnir að hún flytti lokaræðu nemenda á skólaslitunum.
Hún kom í ræðustólinn og flutti ræðuna blaðlaust; Við hættum ekki að leika okkur af því að við verðum gömul. Við verðum gömul af því að við hættum að leika okkur. Það eru aðeins fjögur leyndarmál til að halda sér ungum, vera ánægður og ná árangri.
Þú verður að hlæja alla daga og sjá spaugilegar hliðar á öllum hlutum. Þú verður að eiga þér draum. Ef þú átt þér ekki draum þá áttu ekkert líf. Það eru svo margir lifandi dauðu lífi en fatta það ekki. Það er engin gleði, enginn draumur. Engin tilbreyting.
Það er mikill munur á því að eldast og vitkast eða bara að eldast og verða gamall. Ef þú ert 19 ára,liggur í rúminu, gerir ekkert af viti í heilt ár, þá verðurðu auðvitað tvítugur ári seinna. Og ef ég er 87 ára og ligg í rúminu í heilt ár, þá verð ég auðvitað 88 ára, einu ári seinna. Allir geta elst. Það þarf enga hæfileika til þess eða hæfni. Best er þó að eldast með því að finna hvernig tíminn sem líður er tækifæri til breytinga. Þá er hreyfing á lífi þínu en ekki stöðnun.
Lifðu þannig að þú gerir alltaf þitt besta, aldrei að sjá eftir neinu. Þegar eldra fólk lítur tilbaka sér það sjaldnast eftir því sem það gerði í lífinu heldur því sem það gerði ekki. Þeir sem óttast dauðann eru yfirleitt þeir sem láta ekki drauma sína rætast, þeir lifðu ekki til fulls.
Í lok ræðunnar söng Rósa og hvatti nemendur til að vanda hvern dag sem þeir lifðu Lifa 100% lífi, eins og sá dagur væri sá síðasti.
Viku eftir útskrift lést Rósa í svefni, hún sofnaði mjúklega inn í himnaríki. Yfir 2.000 nemendur fylgdu henni til grafar og sýndu orðum hennar virðingu; Það er aldrei of seint að vera sá/sú sem þú í rauninni ert.
Þessi orð fara nú manna á milli í minningu Rósu. Þú mátt senda þau áfram til þeirra sem þú vilt blessa. Og mundu- að eldast er óhjákvæmilegt en að eldast og vaxa í visku er val. Með því að gefa fáum við tilbaka.
God promises a safe landing, not a calm passage. If God brings you to it, he will bring you through it.
Góðir alvöru vinir eru eins og stjörnur á himni sem þú veist af en sérð ekki alltaf. Þeir skína best í myrkri, þegar þú þarft mest á þeim að halda.
Þú ert stjarnan mín. |