Já hann Árni Snær okkar er 10 ára í dag 23,11,2008
Mikið er þetta fljótt að líða. Ég man þega hann fæddist fyrir 10 árum og þá vorum við hjónin stödd í Mexico.
Drengurinn átti sko að koma í heiminn áður en við færum út, en honum þóknaðist það ekki þannig að afi og amma voru komin til Mexico þegar hann kom í heiminn.
Mamma mín var með Elínu Sigríði þann tíma sem beðið var eftir barninu og áttu þær góðar stundir saman, bæði á Akranesi og í Reykjavík. Pabbi var á spítala líka, þannig að það var í nógu að snúast hjá mömmu.
En auðvitað kláraði mamma sig að þessu öllu með stæl og tók á móti drengnum, klippti á naflastrenginn og baðaði og allt. Takk fyrir kæra mamma.
Og svo þegar drengurinn var mættur í heiminn þá var hringt til Mexico og hann grenjaði í símann og amma grét á móti ..... oh mikið drama..... Já við vorum allt of langt í burtu.
Elsku Elín mín til hamingju með fallega drenginn þinn. Knús, knús, knús, Bestu kveðjur Pabbi og mamma .
Elsku Árni Snær til hamingju með afmælið uppáhalds drengurinn okkar. Eigðu góðan dag. knús og kossar frá afa og ömmu í Ólafsvík