Velkomin

Gaman að sjá þig hér

Flettingar í dag: 5
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 425
Gestir í gær: 58
Samtals flettingar: 57001
Samtals gestir: 16948
Tölur uppfærðar: 21.4.2025 02:49:20

07.06.2010 23:11

Ótitlað

Þetta er svo mikil speki að ég bara verð að deila þessu með ykkur...............

Jafnvel fyrir okkur sem erum ekki svo gömul ennþá, er þetta umhugsunarvert og gott lesefni:

Ung stúlka spurði mig um daginn hvernig það væri að vera gömul. Ég varð forviða því ég hugsa ekki um sjálfa mig sem gamla.

Unga stúlkan varð samstundis skömmustuleg þegar hún sá viðbrögð mín, en ég útskýrði fyrir henni að mér þætti þetta áhugaverð spurning. Ég sagðist ætla að hugsa málið vandlega og gefa henni svo svar.

Eftir nokkra umhugsun ákvað ég að hár aldur er gjöf.

Núna er ég, sennilega í fyrsta skipti á ævinni, sú persóna sem ég hef alltaf viljað vera.

O-hó. ekki þó líkaminn. Ég örvænti stundum út af líkamanum mínum;hrukkunum, pokunum undir augunum og signum rassinum. Og oft verð ég forviða yfir gömlu konunni sem á heima í speglinum (og líkist móður minni).

En ég dvel ekki yfir þessum atriðum lengi. Ég myndi aldrei vilja skipta á ótrúlegu vinum mínum, yndislegu lífi mínu eða ástkærri fjölskyldu minni fyrir færri grá hár eða flatari maga.

Eftir því sem aldurinn færist yfir hef ég orðið vinsamlegri við sjálfa mig, og þar með gagnrýnt sjálfa mig minna. Hef orðið minn eigin vinur. Ég skamma ekki sjálfa mig fyrir að borða þessa auka kökusneið eða fyrir að búa ekki um rúmið mitt.

Eða fyrir að kaupa þessa kjánalegu eðlu úr steypu, sem mig vantaði ekki en tekur sig svo fjandi vel út á veröndinni hjá mér.

Ég á rétt á að verðlauna sjálfa mig, leyfa mér ýmislegt.

Vera drusluleg,

Vera glæsileg.

Ég hef séð of marga kæra vini yfirgefa þennan heim of snemma; áður en þeir skildu hversu dásamlegt frelsið er sem fylgir því að eldast.

Hverjum kemur það við þó ég velji að lesa eða leika mér í tölvunni til klukkan fjögur að nóttu og sofa svo fram að hádegi næsta dag.

Eða ef mig langar til að dansa við sjálfa mig við lögin sem vermdu topp vinsældarlistanna 1960/70.

Og ef mig langar um leið að væla yfir glataðri ást.. þá geri ég það.

Ég mun ganga eftir strönd í baðfötum sem eru strekkt yfir misvel staðsett aukakílóin og ég mun stinga mér í öldurnar af vítaverðu kæruleysi ef mig langar, þrátt fyrir samúðarfullt augnaráð þotuliðsins. Þau munu líka verða gömul.

Ég veit að ég er stundum gleymin. En þegar öllu er á botninn hvolft er sumt í lífinu betur gleymt en geymt. Og öllu jafna man ég það sem skiptir máli.

Auðvitað hefur hjarta mitt brostið nokkrum sinnum í gegnum árin. Hvernig er hægt að komast hjá því þegar þú missir einhvern sem þú elskar, barn þjáist eða jafnvel þegar gæludýrið þitt til margra ára verður fyrir bíl og endar lífið?

Brostin hjörtu eru það sem gefur okkur styrk, skilning og samkennd með öðrum. Hjarta sem aldrei hefur brostið er ósnert og dauðhreinsað og mun aldrei kynnast gleðinni í því að vera ófullkominn.

Ég hef verið blessuð til að lifa nógu lengi að sjá hár mitt verða grátt og æskuhlátur minn geymdan að eilífu í djúpu línunum í andliti mínu.

Svo margir hafa aldrei hlegið. svo margir hafa dáið áður en hár þeirra fékk silfurgráan tón.

Eftir því sem þú eldist, því auðveldara er að vera jákvæður. Þér stendur meira á sama hvað aðrir hugsa. Ég efast ekki um sjálfa mig lengur. Ég hef unnið mér inn réttinn til að hafa rangt fyrir mér.

Svo að hér kemur svarið við spurningunni:

Mér líkar vel að vera gömul. Það hefur frelsað mig. Mér líkar vel við þá manneskju sem ég hef orðið. Ég mun ekki lifa að eilífu, en á meðan ég er hér enn, mun ég ekki eyða tíma í að syrgja hvað hefði getað orðið eða hafa áhyggjur af hvað verður. Og ég ætla að borða ábæti og eftirrétti alla daga ef mig langar til.

Höf. ókunnur.

Þetta er svo mikil speki að ég bara verð að deila þessu með ykkur...............

Jafnvel fyrir okkur sem erum ekki svo gömul ennþá, er þetta umhugsunarvert og gott lesefni:

Ung stúlka spurði mig um daginn hvernig það væri að vera gömul. Ég varð forviða því ég hugsa ekki um sjálfa mig sem gamla.
Unga stúlkan varð samstundis skömmustuleg þegar hún sá viðbrögð mín, en ég útskýrði fyrir henni að mér þætti þetta áhugaverð spurning. Ég sagðist ætla að hugsa málið vandlega og gefa henni svo svar.
Eftir nokkra umhugsun ákvað ég að hár aldur er gjöf.
Núna er ég, sennilega í fyrsta skipti á ævinni, sú persóna sem ég hef alltaf viljað vera.

O-hó. ekki þó líkaminn. Ég örvænti stundum út af líkamanum mínum;hrukkunum, pokunum undir augunum og signum rassinum. Og oft verð ég forviða yfir gömlu konunni sem á heima í speglinum (og líkist móður minni).

En ég dvel ekki yfir þessum atriðum lengi. Ég myndi aldrei vilja skipta á ótrúlegu vinum mínum, yndislegu lífi mínu eða ástkærri fjölskyldu minni fyrir færri grá hár eða flatari maga.

Eftir því sem aldurinn færist yfir hef ég orðið vinsamlegri við sjálfa mig, og þar með gagnrýnt sjálfa mig minna. Hef orðið minn eigin vinur. Ég skamma ekki sjálfa mig fyrir að borða þessa auka kökusneið eða fyrir að búa ekki um rúmið mitt.

Eða fyrir að kaupa þessa kjánalegu eðlu úr steypu, sem mig vantaði ekki en tekur sig svo fjandi vel út á veröndinni hjá mér.

Ég á rétt á að verðlauna sjálfa mig, leyfa mér ýmislegt.

Vera drusluleg,
Vera glæsileg.

Ég hef séð of marga kæra vini yfirgefa þennan heim of snemma; áður en þeir skildu hversu dásamlegt frelsið er sem fylgir því að eldast.

Hverjum kemur það við þó ég velji að lesa eða leika mér í tölvunni til klukkan fjögur að nóttu og sofa svo fram að hádegi næsta dag.

Eða ef mig langar til að dansa við sjálfa mig við lögin sem vermdu topp vinsældarlistanna 1960/70.

Og ef mig langar um leið að væla yfir glataðri ást.. þá geri ég það.

Ég mun ganga eftir strönd í baðfötum sem eru strekkt yfir misvel staðsett aukakílóin og ég mun stinga mér í öldurnar af vítaverðu kæruleysi ef mig langar, þrátt fyrir samúðarfullt augnaráð þotuliðsins. Þau munu líka verða gömul.

Ég veit að ég er stundum gleymin. En þegar öllu er á botninn hvolft er sumt í lífinu betur gleymt en geymt. Og öllu jafna man ég það sem skiptir máli.

Auðvitað hefur hjarta mitt brostið nokkrum sinnum í gegnum árin. Hvernig er hægt að komast hjá því þegar þú missir einhvern sem þú elskar, barn þjáist eða jafnvel þegar gæludýrið þitt til margra ára verður fyrir bíl og endar lífið?

Brostin hjörtu eru það sem gefur okkur styrk, skilning og samkennd með öðrum. Hjarta sem aldrei hefur brostið er ósnert og dauðhreinsað og mun aldrei kynnast gleðinni í því að vera ófullkominn.

Ég hef verið blessuð til að lifa nógu lengi að sjá hár mitt verða grátt og æskuhlátur minn geymdan að eilífu í djúpu línunum í andliti mínu.
Svo margir hafa aldrei hlegið. svo margir hafa dáið áður en hár þeirra fékk silfurgráan tón.

Eftir því sem þú eldist, því auðveldara er að vera jákvæður. Þér stendur meira á sama hvað aðrir hugsa. Ég efast ekki um sjálfa mig lengur. Ég hef unnið mér inn réttinn til að hafa rangt fyrir mér.

Svo að hér kemur svarið við spurningunni:
Mér líkar vel að vera gömul. Það hefur frelsað mig. Mér líkar vel við þá manneskju sem ég hef orðið. Ég mun ekki lifa að eilífu, en á meðan ég er hér enn, mun ég ekki eyða tíma í að syrgja hvað hefði getað orðið eða hafa áhyggjur af hvað verður. Og ég ætla að borða ábæti og eftirrétti alla daga ef mig langar til.

Höf. ókunnur.

12.12.2009 17:32

Jólin

Ástin skilur svo auðveldlega

Það sem þú sérð er minnsti hlutinn;

Þú þarft ekki að hafa jólin í höndum þér

Ef þú hefur jólin í hjarta þér.

(höfundur óþekktur)

21.02.2009 19:58

Eilífðarhamingja

Eilífðarhamingja.

 

Þegar ég var yngri, vóg ég nokkrum kílóum minna. (júúúúúú alveg satt)


Ég þurfti aldrei að halda maganum inni þegar ég fór í þröngan kjól.


En nú, þegar ég er orðin eldri, hefur líkami minn brotist til frelsis.

Og um þann hluta hans sem einu sinni var mitti,

eru þægileg teygjanleg efni.


Ítölsku skórnir þurfa að vera tveim númerum stærri en áður, ef ég kem þá fótunum yfirleitt í þá,

og skrefbótin á sokkabuxunum sígur allt of oft niður undir hné.


En ég hef einnig lært að það skiptir engu máli hvað gerist,

eða hversu DIMMT virðist yfir öllu í dag.


Lífið heldur áfram og á morgun kemur betri dagur.


Ég hef lært, að það segir mikið til um manneskjuna hvernig hún bregst við þessum þremur hlutum:
1. Rigningardegi
2. Týndum farangri
3. Flæktu jólatrésskrauti


Ég hef lært, að óháð því hvernig samband okkar er við foreldra okkar, komum við til með að sakna þeirra,

þegar þau eru horfin á braut.


Ég hef lært, að það að verða sér úti um peninga og hluti,

er ekki það sama og að skapa sér líf !


Ég hef lært, að af og til býður lífið okkur upp á annað tækifæri.


Ég hef lært, að maður getur ekki farið í gegnum lífið með hornabolta-hanska á báðum höndum.

Öðru hvoru verður maður líka að gefa boltann til baka.


Ég hef lært, að þegar ég ákveð eitthvað beint út frá hjartanu, þá hef ég yfirleitt hitt á hina einu réttu ákvörðun.


Ég hef lært, að þó að ég sé sár, þurfi ég ekki að særa aðra.

Ég hef lært, að á hverjum degi eigi maður að rétta öðrum höndina.


Allir þurfa hlýjar hugsanir og vinalegt klapp á axlirnar.


Ég hef lært, að ég er alltaf að læra eitthvað nýtt.

Ég hef lært, að það sem þú segir og gerir vill gleymast,

en fólk gleymir ekki hvernig þú lætur því líða.


Sendu þessa orðsendingu til að minnsta kosti fimm frábærra kvenna í dag og eitthvað gott verður á vegi þínum... Þú hefur í það minnsta sagt öðrum konum að þér finnst þær frábærar, og kannski færðu þær til að brosa.


En ef þú ekki gerir þetta... þá bilar rennilásinn og sokkabuxurnar rúlla niður á hæla, þangað sem ítölsku skórnir meiða þig...!!

 

Kveðja til ykkar allra

Árný Bára

14.02.2009 07:21

Ótitlað



Í dag er alþjóðlegur dagur brjálæðislega glæsilegra og geysilega gáfaðra kvenna
 
Því eiga allar slíkar konur skilið að fá þetta skeyti í tilefni dagsins.
Það er óþarfi að senda mér til baka þar sem ég hef þegar fengið skeytið frá einni brjálæðislega glæsilegri og geysilega gáfaðri konu!
 
En mundu boðorðið:
Lífið á ekki að vera rólyndis rölt að grafarbakkanum með það að markmiði að komast örugg á áfangastað í huggulegum og vel varðveittum líkama.
Miklu heldur á það að vera blússandi gleðibuna og ískrandi yndisflug með súkkulaði í annarri og vínglas í hinni í fullnýttum og gatslitnum skrokki öskrandi...


Fjárans fjör sem þetta er!


Fékk þetta sent frá góðri vinkonu og langaði að deila þessu með ykkur kv
Árný Bára


 

15.01.2009 23:32

Ótitlað

           Systur að eilífu

Ung kona var í heimsókn hjá móður sinni og  drakk íste til þess að kæla sig í mesta sumarhitanum.Um leið og þær töluðu um lífið, hjónabandið, ábyrgðina og skuldbindingar fullorðinsáranna hristi móðirin klakamolana  í glasi sínu svo að telaufið þyrlaðist upp og leit hreinskilnislega á dóttur sína: "Gleymdu ekki systrum þínum, þær verða  því mikilvægari sem þú eldist. Einu gildir hversu mikið þú elskar manninn þinn eða börnin sem þú kannt að eignast, þú munt alltaf þarfnast systra. Mundu t.d. eftir að lyfta þér upp með þeim. Með systrum á ég við ALLAR konurnar í lífi þínu. Ég á við vinkonurnar, dætur þínar og aðrar konur sem þér eru tengdar blóðböndum. Þú munt þarfnast annarra kvenna. Þannig er þetta bara."
    "Þetta er skrýtið ráð," hugsaði unga konan. "Ég er nýgift, nýkomin inn í hjónaheiminn. Nú er ég gift kona, svo sannarlega fullorðin manneskja. Maðurinn minn og fjölskyldan sem við vonumst til að eignast verða allt sem skiptir máli í lífi mínu."
Þótt unga konan væri ekki ginnkeypt fyrir ráðum móður sinnar í þetta sinn fór þó svo að hún tók mark á henni. Hún ræktaði sambandið við systur sínar og eignaðist fjölda vinkvenna. Þegar tímar liðu varð henni ljóst að mamma hennar hafði rétt fyrir sér.
Tíminn og framvinda lífsins marka spor á konur en systur eru óumbreytanlegar. Sannleikurinn kristallast í eftirfarandi:

Tíminn líður hjá, lífið á sér stað, fjarlægðir skilja menn að, börn vaxa úr grasi, atvinnutækifæri koma og fara, ástin getur orðið að vana, menn gera einfaldlega ekki það sem vænst er af þeim, hjörtu bresta, foreldrar deyja, samstarfmenn gleyma greiðunum sem þeim eru gerðir og framabrautin tekur enda EN Systur eru enn til staðar óháð tíma og fjarlæg. Góð vinkona er aldrei í meiri fjarlægð en svo að það megi nálgast hana á einhvern hátt.  Þegar erfiðleika  ber að höndum og þú ert ein þíns liðs þá bíður ævinlega einhvers staðar systir með útrétta arma þér til hjálpar. Stundum eru þær jafnvel reiðubúnar að ganga með þér spölkorn eða líta við og rjúfa þar með  einmanaleikann..
    Vinkonur, dætur, ömmustelpur, tengdadætur, systur, mágkonur mæður, ömmur, föðursystur, móðursystur, systradætur, bróðurdætur og frænkur af ýmsu tagi í stórfjölskyldunni eru okkur öllum til blessunar. Veröldin væri önnur án kvenna. Þegar við lögðum af stað í það ævintýri sem fylgir því að vera kona þá höfðum við litla hugmynd um þá gleði og sorg sem fram undan væri. Við gerðum okkur heldur ekki grein fyrir hversu mjög við kynnum að þarfnast hver annarrar. Þannig verður það áfram.

Athugaðu:
    Sendið þetta áfram til þeirra kvenna sem skipta máli í lífi ykkar. Í stuttu máli sagt: Hugsaðu þér að það séu 20 englar í heiminum. Tíu sofa í ró á skýjunum, níu leika sér og einn les núna rétt í þessu tölvupóst dagsins um systur.


Fékk þetta sent frá góðri vinkonu og langaði að deila þessu með ykkur
kv
Árný Bára

24.12.2008 10:25

Gleðileg jól

Æ.K

Árný Bára , Ægir og fjölskylda,
 óska öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári,
 með þökk fyrir auðsýnda samúð og vinahug.

10.12.2008 07:25

Gleði og sorgir




Deildu gleði þinni með öðrum 
og hún mun tvöfaldast.
Deildu sorg þinni með öðrum 
og hún mun minka um helming.

10.12.2008 00:02

SORG OG GLEÐI

  Gleðin


Þegar þér um síðir auðnast að treysta gleðinni og faðma hana að þér, 

muntu komast að því að allt líkt og stígur dans við þig.

Við njótum aðeins til fulls þeirrar gleði sem við veitum öðrum.

Engin tilfinning er eins full tálvona og gleðin.

Engin skylda er eins vanmetin og sú að gleðjast yfir litlu.

Gleðin er hið eina sem maður getur ekki gefið öðrum,

nema maður eigi hana sjálfur.

Njóttu gleði augnabliksins þannig

 að þú spillir ekki  þeirri gleði er síðar kemur.

Sönn gleði er alvöru mál.

Ef við ýktum gleði okkar í sama mæli og sorg okkar,

 myndu erfiðleikar okkar ekki vera umtalsverðir.

Það sjást engin ummerki í loftinu eftir vængi mina,

en gleði mín stafar af fluginu.

Mörg gleðin er ekki metin að verðleikum,

vegna þess að hún kostar ekki neitt.

Þegar bikar lystisemdanna hefur verið tæmdur

 sést ekki til botns í gleðinni.

Í skjóli gleðinnar verða allir menn bræður.

Sá sem ann sér þeirrar gleði að gleðjast yfir gleði annarra

eyðir öfundinni eins og sólin eyðir myrkrinu.

Kvartaðu ekki yfir því að rósarunnarnir hafi þyrna, 

gleðstu heldur yfir því að þeir skulu hafa rósir.

 Mundu að þögnin er stundum besta svarið.  

 

Sorgin


Bara að sorgir og áhyggjur nýja árssins standi jafn stutt og áramóraheitin.

Hryggðinni er skipt jafnara en menn halda.

Að hafa áhyggjur er að hylja sólskin dagsins undir skýjum morgundagsins.

Því dýpri sem sorgin er þess fámálli er hún.

Sjái maður sorgir sínar gegnum glasbotn sýnast þær stærri.

Sorgin er einskonar ryð sálarinnar,

 sem hver ný hugmynd á þátt í að hreinsa burt.

Hlátur og grátur, unaður og sársauki eru systkinabörn.

Verði maður fyir sorg má maður ekki segja:

 hvers vegna þurfti þetta að koma fyrir mig?

  nema maður leggi sömu spurningu fram

 í hvert sinn sem maður gleðst yfir einhverju.

Þau sár sem blæða inn eru hættulegust.


TÁR.


Tárin sem menn kyngja eru miklu beiskari en þau sem þeir fella.

Tárin koma í veg fyrir að sorgin snúist í örvæntingu.

Tár vor þorna fljótt, 

einkum ef það er sorg annarra sem hefur komið þeim út á okkur.


06.12.2008 18:13

Ótitlað

Sérhver dagur mannlífsins felur í sér gleði og angur,
kvöl og sælu myrkur og ljós, vöxt og hrörnun.
Hvert andartak er mótað eftir stórbrotnu sniði náttúrunnar
-reyndu ekki að afneita eða standa á móti
reglufestu alheimsins.

23.11.2008 10:23

ÁRNI SNÆR 10 ÁRA Í DAG

emoticon Komið þið sæl og blessuð. emoticon

10 ÁRA
emoticon

 emoticon  emoticon  emoticonemoticon    emoticon  emoticon emoticon    emoticon emoticonemoticon emoticon emoticon emoticon emoticon

Já hann Árni Snær okkar er 10 ára í dag 23,11,2008

Mikið er þetta fljótt að líða.
Ég man þega hann fæddist fyrir 10 árum og þá vorum við hjónin stödd í Mexico.

Drengurinn átti sko að koma í heiminn áður en við færum út, en honum þóknaðist það ekki þannig að afi og amma voru komin til Mexico þegar hann kom í heiminn.

Mamma mín var með Elínu Sigríði þann tíma sem beðið var eftir barninu og áttu þær góðar stundir saman, bæði á Akranesi og í Reykjavík.
Pabbi var á spítala líka, þannig að það var í nógu að snúast hjá mömmu.

En auðvitað kláraði mamma  sig að þessu öllu með stæl og tók á móti drengnum, klippti á naflastrenginn og baðaði og allt.
Takk fyrir kæra mamma.

Og svo þegar drengurinn var mættur í heiminn þá var hringt til Mexico og hann grenjaði í símann og amma grét á móti ..... oh mikið drama.....
Já við vorum allt of langt í burtu.

Elsku Elín mín til hamingju með fallega drenginn þinn.
                              emoticon  Knús, knús, knús,emoticon
Bestu kveðjur
Pabbi og mamma . 

Elsku Árni Snær til hamingju með afmælið uppáhalds drengurinn okkar.
Eigðu góðan dag.
emoticon knús og kossar emoticon frá afa og ömmu í Ólafsvík


 

13.11.2008 20:52

emoticon emoticon 
Jæja krakkar mínir .

Þá er best að setja eitthvað hérna inn.
Af okkur er allt gott að frétta.
Ég fór í þetta líka fína skvísupartý síðastliðinn laugardag,
hjá henni Rut vinkonu minni. Rut er  æskuvinkona mín frá Fáskrúðsfirði.
Þetta var bara gaman. Flestar gellurnar þarna voru frá Fáskrúðsfirði þannig að það var mikið spjallað og mikið hlegið.
Frábær matur og meðlæti.
Ummm aldeilis frábært kvöld.
Takk fyrir mig Rut.
Eiður, heittelskaður eiginmaður Rutar (50)  var yfirgrillari.
Og eins og haninn í hænuhópnum.emoticon
emoticon 
Jæja það er rok og rigning hérna.
Að vanda.
emoticon     emoticon
Fór í ræktina í morgun.
vel tekið á því hjá okkur Kötu.
Læri og magi.
emoticon 
Saumaði þennan líka flotta bútasaumsdúk á eldhúsborðið hjá mér í gær og kláraði bútasaumsteppið fyrir Ragnheiði Mist.
Teppið átti hún að fá þegar hún fæddist þann 26.07.08.
Ó JÁ ÞANNIG ER NÚ ÞAÐ.
En betra er seint en aldrei.
emoticon 
Jæja þetta fínt í bili.
Set hérna inn nokkur spakmæli ( ef spakmæli má kalla)
 emoticon
Heima er best í hófi.
Þegar neiðin er stærst er hjálpin fjærst.
Oft er bankalán ólán í láni.
Betra er að fara á kostum en taugum.
Víða er þvottur brotinn.
emoticon 
Egið góðan dag
kv
adda bara

05.11.2008 09:52

Kreppa og kreppa ?

Smá dæmisaga vegna hinnar svokölluðu "kreppu"

Íslensk kona hefur verið að styrkja námsmann í Uganda sem "óvænt varð á vegi hennar" eins og hún orðaði það. Hann var búinn að lofa að senda henni einkunnirnar sínar sem hann og gerði þegar þar að kom. Þar kom fram að hann hafði fengið A í öllum fögum og góða umsögn að auki. Það var nefnilega búið að gera honum ljóst að góður árangur væri lykillinn að því að hann fengi áframhaldandi styrk.

En allt er breytingum undirorpið í henni veröld og ýmislegt getur vissulega haft áhrif á afkomu Frónbúans og getu hans til að láta gott af sér leiða. Hún var að velta því fyrir sér hvort rétt væri að reyna að segja honum frá gangi mála hér á landi, þ.e. kreppunni og öllu því. Og það gæti því miður reynst nauðsynlegt að skera eitthvað niður styrkinn vegna hins breytta ástands hérna megin. Það eru nefnilega tiltölulega litlar líkur á því að fréttir af Íslenska skipbrotinu hafi borist alla leið til hans þarna í Entebbe. Og svo er alls ekki víst að hann skilji alvöru málsins á sama hátt og við hér heima. En ef reynt væri að útskýra hið Íslenska kreppuástand fyrir honum sem virðist ætla að fara langt með að sliga þjóðina einhver þó nokkur ár inn í framtíðina, gæti það samtal orðið á eftirfarandi nótum.



*Heyrðu félagi, það er úr vöndu að ráða. Íslenska þjóðin er gjaldþrota!

Hvað segirðu, en leiðinlegt að heyra, eigið þið þá ekki fyrir baunum og maís?

*Jú reyndar eru búðir fullar af mat og enginn vöruskortur.

Hvað segirðu, þið eigið þá mat. Það er gott. En eigið þiðþá ekki þak yfir höfuðið lengur!

*Jú við eigum reyndar íbúð eins og flestir og það eru fáir heimilislausir á Íslandi.

En hvað segirðu mér þá? Gengur plága yfir landið, eru allir veikir og heilbrigðiskerfið lamað?

*Nei nei reyndar ekki, við fáum nánast ókeypis læknaþjónustu og erum með ágætt heilbrigðiskerfi.

Nú jæja. Það var gott að heyra. En eru þá skólarnir að loka og fá kannski ekki allir tækifæri til að læra að lesa lengur og sérstaklega þá ekki konur.

*Jú reyndar er 99,9% læsi á Íslandi og menntakerfið er ágætt, margir með háskólagráður og konur ekki síður en karlar.

Það er nú gott, en þið verðið þá að passa er að lenda ekki í stríði við nágrannaþjóðir ykkar.

*Uuuu við erum reyndar ekki með her og teljumst nú frekar friðsæl þjóð. En við þurfum bara að hlusta á bullið og stríðsyfirlýsingarnar í fíflinu honum Gordon Brown. Það er það sem við munum líklega komst næst því að fara í stríð.

Ok. Segðu mér nú samt ekki að þið komist ekki í hreint vatn.

*Við eigum reyndar besta vatn í heimi.

Nú, er vegakerfið þá ónýtt? Hérna í Afríku ganga allir eða nota asna og stundum reiðhjól. Það eru líka til strætisvagnar hérna, en þeir eru alltaf yfirfullir.

Eru kannski strætóarnir hjá ykkur hættir að ganga?

*Neeee... Það er verið að ræða um hvort almenningssamgöngur hér eigi að vera ókeypis, en það eru flestallir vegir malbikaðir og næstum allir eru á nýlegum bílum.

Eigið þið þá enga peninga til að gera ykkur glaðan dag? Ég meina, þú sagðir að þjóðin væri gjaldþrota.

*Flestir eiga reyndar einhvern sparnað á
bókum þó sumir hafi tapað honum eða hluta hans síðustu daga. Það verður alla vega erfitt að kaupa stærri flatskjái og utanlandsferðunum verður að fækka.

Já, ég á kannski einhvern tíma eftir að fara til útlanda, en ég er nú líka frá Uganda. Hefur kannski enginn vinnu og þurfið þið núna öll að betla?

*Neiiij...! Atvinnuleysið er um 2% en við verðum að flytja Pólverjana aftur heim og fara sjálf að vinna vinnuna sem þeir unnu.

Hmmm... Svo þið hafið peninga, mat, húsaskjól, heilbrigðiskerfi, menntakerfi, búið við frið, eigið nóg hreint vatn og samgöngur eru góðar.

Segðu mér, hvert var vandamálið aftur?

 Já það er spurning.
kv
Árný Bára

01.11.2008 17:38

Hamingjan


Hamingjan er umfram allt fólgin í því einfalda og fábreytta: vínglasi, bökuðum hnetum, ofurlitlu glóðarkeri, nið frá sjónum... Allt sem til þarf er að þú gleymir ekki að hamingjan er hér og nú - að bústaðurinn sem hún kýs sér er einfalt og fábreytt hjartalag.
 Nikos Kazantzakis


Eigið góðan dag
kv
Árný Bára

30.10.2008 09:37

Litla syndin ljúfa

 Halló kæru vinir.
Langaði að deila þessari dásmlegu synd með ykkur.
Já það eru líka  til dásmlegar syndir í þessari krepputíð.
Njótið þessarar syndar í botn og allt verður ljúft og gott .
(alla vegana í smá tíma)  
 
 

Litla Syndin ljúfa   

Óskilgreindar uppskriftir

góður og einfaldur eftirréttur sem allir ættu að gera


140 g smjör, og meira til að smyrja formin
140 g 70% Nóa Síríus Súkkulaði
2 egg
3 eggjarauður
140 g flórsykur
60 g hveiti

LITLA SYNDIN
140 g smjör, og meira til að smyrja formin
140 g 70% Nóa Síríus Súkkulaði
2 egg
3 eggjarauður
140 g flórsykur
60 g hveiti

Hitið ofninn í 220 gráður (ekki nota blástur). Smyrjið 6 lítil soufflé-form eða bolla vel með smjöri ( Ef notuð eru annars konar form er ráð að prófa að baka eina synd til að bökunartíminn passi örugglega.) Setjið smjör og súkkulaði í pott og bræðið við vægan hita. Takið af hitanum um leið og smjörið er bráðið og hrærið þar til súkkulaðið er alveg bráðið. Þeytið egg og eggjarauður í skál og setjið svo flórsykurinn út í og þeytið vel. Hellið súkkulaðiblöndunni saman við og þeytið á meðan og hrærið að lokum hveitinu saman við. Skiptið deiginu jafnt í formin (rúmlega 1 dl í hvert form) og gætið þess að fylla þau ekki alveg. Setjið formin á plötu eða í ofnskúffu og bakið kökurnar í 11-12 mínútur (án blásturs). Ef deigið hefur verið geymt í kæli þá er bökunartíminn 13-14 mín (jafnvel 15 mín. ef það var í formunum og í kæli). Takið þær út og látið kólna í 3 mínútur. Rennið hnífsblaði í kringum kökurnar til að losa betur um þær og hvolfið þeim á diska. Sigtið e.t.v. svolítinn flórskykur yfir og berið kökurnar fram t.d með hindberja- eða vanillusósu og e.t.v berjum eða öðrum ávöxtum.




Gott að bera fram með vanilluís














26.10.2008 06:36

Vinátta og virðing

 

 
Sýnið hvert öðru hlýhug, elsku, vináttu og virðingu!

Með því að virða tilfinningar, vilja og ákvarðanir náungans, gerum við lífið þess virði að lifa því!

Sendu náunganum bros, það getur bjargað degi hans/hennar!

Faðmaðu einhvern á hverjum degi, segðu honum/henni að þér þyki vænt um hann/hana!

Þú ert sérstök/sérstakur, láttu aðra finna að þér finnist þeir líka sérstakir!

Með vináttu og kærleik, sem ekki kostar neitt, getur maður gert stóra hluti.







Eldra efni

clockhere

Tenglar

Eldra efni

Tenglar