Velkomin

Gaman að sjá þig hér

Flettingar í dag: 394
Gestir í dag: 49
Flettingar í gær: 85
Gestir í gær: 26
Samtals flettingar: 56965
Samtals gestir: 16936
Tölur uppfærðar: 20.4.2025 19:33:50

Færslur: 2007 Júní

20.06.2007 11:15

Hjólaferðin

JÆJA KRAKKAR MÍNIR.
þá erum við hjónin komin heim úr okkar frækilegu hjólaferð.
Það verður nú að segjast eins og er að þetta fór fram úr okkar björtustu vonum.
Fyrsti dagurinn fór bara í ferðalag þannig að við vorum orðin ansi lúin þegar við komumst á leiðarenda.
En dagurinn tekinn snemma í Bolsano og hjólað 70 km já bara eins og að drekka vatn allt niður í móti og fegurð fjalla og dala alveg ólýsanleg.
og þannig liðu dagarnir hjóað 50-70 km á dag  í sól og svo kom rignig einnig  komu að sjálfsögðu nokkrar góðar brekkur mis erfiðar  og mis langar , en þegar leið á ferðina fann maður minna fyrir þessum svokallaða brekkukvíða og hjólaði bara í fyrsta -fyrsta. Já þetta er bara alveg frábær ferðamáti. Og þið sem voruð að hafa áhyggjur af honum Ægi mínum um að hann væri ekki farinn að æfa sig í að hjóla þá verð ég að segja það eins og er að hann hjólaði eins og hann væri búin að æfa grimmt í þessi 40 ár sem hann hefur ekki æft. Bara helvíti seigur strákurinn og blés ekki úr nös. Þessa ferð enduðum við svo í Feneyjum og fórum út í eyjuna Lídó lágum þar í sólbaði með Önnu Maju og Lauga og þeim drengjum tókst að brenna bæði á mallakút og undir höndum æ,æ ok ekki gott.
Þetta er bara tær snilld þessi ferð !
Mæli með þessu fyrir alla.
Við hjónakornin erum alveg alsæl og takk fyrir að taka okkur með Anna og Laugi.
Þið voruð frábærir ferðafélagar.
Og þetta var alveg stórfínn hópur í alla staði.
Bið að heilsa í bili
kv
Adda Bára

10.06.2007 10:33

Hjólaferðin

Já góðan daginn.


Þá er nú best að reyna að skrifa eitthvað á þessa síðu mína.
Eg held að ég sé nú bara alveg glötuð í þessu.
Gleymi bara að ég sé með þessa síðu.
En senn líður að hjólaferðini og við förum suður á morgun mánudag. Ég ætla að pakka í dag.
Veit ekki alveg hvað ég á að pakka miklu.  Ægir nær í töskurnar á háaloftið og þegar búið er að viðra þær þá kemur í ljós hvað dettur ofaní.
En það er búið að fjárfesta í þessum ´líka fínu hjólreiðabuxum.
Fóðraðar í bak og fyrir þannig að manni á bara að líða vel á hjólinu.
Einnig fengum við okkur nokkra boli og nýja sandala þannig að við erum bara fær í flestan sjó.
Ægir fjárfesti svo í bakpoka sem hann getur svo notað í útileguna í sumar.
Við fórum í gærkveldi út í Djúpalón og gengum í sandinum og nutum útiverunnar, en það var alveg frábært veður.
Þar er líka frábær ljósmyndasýning . Keyrðum einnig á Stapann og það var bara fullt á tjaldstæðinu.
Jæja best að hætta þessu en þið getið séð blogg fararstjórans á hjólreiðaferðin og einnig inná urvalutsyn.is íþróttir og þar inni hjólaferðir Bolsano
Sjáumst og heyrumst
Knús og kossar til ykkar allra
kv
Árný Bára og Ægir



04.06.2007 20:19

Hjóaferðin

 4. júní 2007
 Halló!
Jæja þá líður senn að hjólaferðinni okkar skötuhjúa.
Já við fljúgum út þann 12 júní
Erum í bænum og búin að kaupa hjólabuxurnar.
Ægir keypti sér lítinn bakpoka en ég keypti mér griflur.
það er víst betra að fá ekki blöðrur á hendurnar.
Já svo keyptum við okkur fullt af bolum en það er kannski betra að hafa nóg af slíku.
Skruppum svo í heimsókn til pabb og mömmu, en pabbi var nú bara einn heima því
mamma er á spítala, þannig að við förum til hennar bara á morgun.
jæja nóg í bili
bæjó
Kv
Adda Bára

  • 1

Eldra efni

clockhere

Tenglar

Eldra efni

Tenglar