Velkomin

Gaman að sjá þig hér

Flettingar í dag: 322
Gestir í dag: 37
Flettingar í gær: 85
Gestir í gær: 26
Samtals flettingar: 56893
Samtals gestir: 16924
Tölur uppfærðar: 20.4.2025 19:11:27

Færslur: 2009 Febrúar

21.02.2009 19:58

Eilífðarhamingja

Eilífðarhamingja.

 

Þegar ég var yngri, vóg ég nokkrum kílóum minna. (júúúúúú alveg satt)


Ég þurfti aldrei að halda maganum inni þegar ég fór í þröngan kjól.


En nú, þegar ég er orðin eldri, hefur líkami minn brotist til frelsis.

Og um þann hluta hans sem einu sinni var mitti,

eru þægileg teygjanleg efni.


Ítölsku skórnir þurfa að vera tveim númerum stærri en áður, ef ég kem þá fótunum yfirleitt í þá,

og skrefbótin á sokkabuxunum sígur allt of oft niður undir hné.


En ég hef einnig lært að það skiptir engu máli hvað gerist,

eða hversu DIMMT virðist yfir öllu í dag.


Lífið heldur áfram og á morgun kemur betri dagur.


Ég hef lært, að það segir mikið til um manneskjuna hvernig hún bregst við þessum þremur hlutum:
1. Rigningardegi
2. Týndum farangri
3. Flæktu jólatrésskrauti


Ég hef lært, að óháð því hvernig samband okkar er við foreldra okkar, komum við til með að sakna þeirra,

þegar þau eru horfin á braut.


Ég hef lært, að það að verða sér úti um peninga og hluti,

er ekki það sama og að skapa sér líf !


Ég hef lært, að af og til býður lífið okkur upp á annað tækifæri.


Ég hef lært, að maður getur ekki farið í gegnum lífið með hornabolta-hanska á báðum höndum.

Öðru hvoru verður maður líka að gefa boltann til baka.


Ég hef lært, að þegar ég ákveð eitthvað beint út frá hjartanu, þá hef ég yfirleitt hitt á hina einu réttu ákvörðun.


Ég hef lært, að þó að ég sé sár, þurfi ég ekki að særa aðra.

Ég hef lært, að á hverjum degi eigi maður að rétta öðrum höndina.


Allir þurfa hlýjar hugsanir og vinalegt klapp á axlirnar.


Ég hef lært, að ég er alltaf að læra eitthvað nýtt.

Ég hef lært, að það sem þú segir og gerir vill gleymast,

en fólk gleymir ekki hvernig þú lætur því líða.


Sendu þessa orðsendingu til að minnsta kosti fimm frábærra kvenna í dag og eitthvað gott verður á vegi þínum... Þú hefur í það minnsta sagt öðrum konum að þér finnst þær frábærar, og kannski færðu þær til að brosa.


En ef þú ekki gerir þetta... þá bilar rennilásinn og sokkabuxurnar rúlla niður á hæla, þangað sem ítölsku skórnir meiða þig...!!

 

Kveðja til ykkar allra

Árný Bára

14.02.2009 07:21

Ótitlað



Í dag er alþjóðlegur dagur brjálæðislega glæsilegra og geysilega gáfaðra kvenna
 
Því eiga allar slíkar konur skilið að fá þetta skeyti í tilefni dagsins.
Það er óþarfi að senda mér til baka þar sem ég hef þegar fengið skeytið frá einni brjálæðislega glæsilegri og geysilega gáfaðri konu!
 
En mundu boðorðið:
Lífið á ekki að vera rólyndis rölt að grafarbakkanum með það að markmiði að komast örugg á áfangastað í huggulegum og vel varðveittum líkama.
Miklu heldur á það að vera blússandi gleðibuna og ískrandi yndisflug með súkkulaði í annarri og vínglas í hinni í fullnýttum og gatslitnum skrokki öskrandi...


Fjárans fjör sem þetta er!


Fékk þetta sent frá góðri vinkonu og langaði að deila þessu með ykkur kv
Árný Bára


 

  • 1

Eldra efni

clockhere

Tenglar

Eldra efni

Tenglar