Velkomin

Gaman að sjá þig hér

Flettingar í dag: 27
Gestir í dag: 15
Flettingar í gær: 245
Gestir í gær: 11
Samtals flettingar: 56513
Samtals gestir: 16876
Tölur uppfærðar: 19.4.2025 06:53:40

Ljósbrot.(Snjallyrði um gleði, ást og vináttu)

                      Kærleikurinn




Ef einhver er svo heimskur að gera þér rangt til
skaltu endurgjalda það með vernd og fölskvalausum kærleika


                                                              Frá Indlandi


Þar sem kærleikurinn hefur fastar rætur
 lætur guð rósina spretta.

                 
                                                     Frá Rússlandi



Kærleiki og trúfesti munu aldrei yfirgefa þig.
Bind þau um háls þér, rita þau á spjald hjarta þíns,
þá munt þú ávinna þér hylli og fögur hyggindi,
bæði í augum guðs og manna.


                                                    Biblían- Orðskviðir Salómons


                             Vináttan


Skraut heimilisins eru vinir sem þangað koma

Besti vinurinn sem við eigum
 er sá sem þekkir galla okkar
og er samt vinur okkar.


Þótt vinur dvelji í fjarlægð er hann nálægur vinum sínum.
 Máninn er fjarlægur;þó kyssir hann lótusblómið hverja nótt.

Stysta leið til manns
hvar sem er á jörðinni
er hlýleg hugsun. 


                              (Gunnar Dal. ,,Meðan þú gefur'')

Þó að leiðin virðist vönd,
vertu aldrei hryggur.
Það er eins og hulin hönd
hjálpi er mest á liggur.

                             (
Jón S. Bergmann)

  
  Til góðs vinar
liggja gangvegir 

               (Hávamál) 
    



                       
                           Ástin


Verið sjálfstæð í einingu ykkar
 og látið vinda himinsins leika milli ykkar


Ástin felst ekki í því að glápa hvort á annað heldur
að horfa fram á veginn - í sömu átt.

Ef  þú spyrð hvað ástin sé
þá er hún ekki annað en
vindur sem þýtur í rósarunnunum og síðan lægir.
En stundum er hún líka eins og þanið segl,
sem varir allt lífið, varir allt til dauðans.
Guð hefur skapað ástina í margvílegum myndum og hann
hefur séð hana endast eða taka enda.

                                                                
                                                (Knut Hansen)




Mesta hamingja lífsins er vissa um að vera elskaður sjálfs sín vegna,
 réttar sagt:
Að vera elskaður þrátt fyrir sjálfan sig.


                                                (Vicgtor Hugo)


það er með ástina eins og matinn;
maður verður að neyta  forréttarins
á undan heita réttinum

    
     Poul Thorsen
clockhere

Tenglar

Tenglar