                                                      Velkomin
    <language>is</language>
Ótitlað
      <description>Þetta er svo mikil speki að ég bara verð að deila þessu með ykkur...............      Jafnvel fyrir okkur sem erum ekki svo gömul ennþá, er þetta umhugsunarvert og gott lesefni:    Ung stúlka spurði mig um daginn hvernig það væri að vera gömul. Ég varð forviða því ég hugsa ekki um sjálfa mig sem gamla.  Unga stúlkan varð samstundis skömmustuleg þegar hún sá viðbrögð mín, en ég útskýrði fyrir henni að mér þætti þetta áhugaverð spurning. Ég sagðist ætla að hugsa málið vandlega og gefa henni svo svar.  Eftir nokkra umhugsun ákvað ég að hár aldur er gjöf.  Núna er ég, sennilega í fyrsta skipti á ævinni, sú persóna sem ég hef alltaf viljað vera.    O-hó. ekki þó líkaminn. Ég örvænti stundum út af líkamanum mínum;hrukkunum, pokunum undir augunum og signum rassinum. Og oft verð ég forviða yfir gömlu konunni sem á heima í speglinum (og líkist móður minni).    En ég dvel ekki yfir þessum atriðum lengi. Ég myndi aldrei vilja skipta á ótrúlegu vinum mínum, yndislegu lífi mínu eða ástkærri fjölskyldu minni fyrir færri grá hár eða flatari maga.    Eftir því sem aldurinn færist yfir hef ég orðið vinsamlegri við sjálfa mig, og þar með gagnrýnt sjálfa mig minna. Hef orðið minn eigin vinur. Ég skamma ekki sjálfa mig fyrir að borða þessa auka kökusneið eða fyrir að búa ekki um rúmið mitt.    Eða fyrir að kaupa þessa kjánalegu eðlu úr steypu, sem mig vantaði ekki en tekur sig svo fjandi vel út á veröndinni hjá mér.    Ég á rétt á að verðlauna sjálfa mig, leyfa mér ýmislegt.    Vera drusluleg,  Vera glæsileg.    Ég hef séð of marga kæra vini yfirgefa þennan heim of snemma; áður en þeir skildu hversu dásamlegt frelsið er sem fylgir því að eldast.    Hverjum kemur það við þó ég velji að lesa eða leika mér í tölvunni til klukkan fjögur að nóttu og sofa svo fram að hádegi næsta dag.    Eða ef mig langar til að dansa við sjálfa mig við lögin sem vermdu topp vinsældarlistanna 1960/70.    Og ef mig langar um leið að væla yfir glataðri ást.. þá geri ég það.    Ég mun ganga eftir strönd í baðfötum sem eru strekkt yfir misvel staðsett aukakílóin og ég mun stinga mér í öldurnar af vítaverðu kæruleysi ef mig langar, þrátt fyrir samúðarfullt augnaráð þotuliðsins. Þau munu líka verða gömul.    Ég veit að ég er stundum gleymin. En þegar öllu er á botninn hvolft er sumt í lífinu betur gleymt en geymt. Og öllu jafna man ég það sem skiptir máli.    Auðvitað hefur hjarta mitt brostið nokkrum sinnum í gegnum árin. Hvernig er hægt að komast hjá því þegar þú missir einhvern sem þú elskar, barn þjáist eða jafnvel þegar gæludýrið þitt til margra ára verður fyrir bíl og endar lífið?    Brostin hjörtu eru það sem gefur okkur styrk, skilning og samkennd með öðrum. Hjarta sem aldrei hefur brostið er ósnert og dauðhreinsað og mun aldrei kynnast gleðinni í því að vera ófullkominn.    Ég hef verið blessuð til að lifa nógu lengi að sjá hár mitt verða grátt og æskuhlátur minn geymdan að eilífu í djúpu línunum í andliti mínu.  Svo margir hafa aldrei hlegið. svo margir hafa dáið áður en hár þeirra fékk silfurgráan tón.    Eftir því sem þú eldist, því auðveldara er að vera jákvæður. Þér stendur meira á sama hvað aðrir hugsa. Ég efast ekki um sjálfa mig lengur. Ég hef unnið mér inn réttinn til að hafa rangt fyrir mér.    Svo að hér kemur svarið við spurningunni:  Mér líkar vel að vera gömul. Það hefur frelsað mig. Mér líkar vel við þá manneskju sem ég hef orðið. Ég mun ekki lifa að eilífu, en á meðan ég er hér enn, mun ég ekki eyða tíma í að syrgja hvað hefði getað orðið eða hafa áhyggjur af hvað verður. Og ég ætla að borða ábæti og eftirrétti alla daga ef mig langar til.    Höf. ókunnur.  Þetta er svo mikil speki að ég bara verð að deila þessu með ykkur............... Jafnvel fyrir okkur sem erum ekki svo gömul ennþá, er þetta umhugsunarvert og gott lesefni: Ung stúlka spurði mig um daginn hvernig það væri að vera gömul. Ég varð forviða því ég hugsa ekki um sjálfa mig sem gamla. Unga stúlkan varð samstundis skömmustuleg þegar hún sá viðbrögð mín, en ég útskýrði fyrir henni að mér þætti þetta áhugaverð spurning. Ég sagðist ætla að hugsa málið vandlega og gefa henni svo svar. Eftir nokkra umhugsun ákvað ég að hár aldur er gjöf. Núna er ég, sennilega í fyrsta skipti á ævinni, sú persóna sem ég hef alltaf viljað vera. O-hó. ekki þó líkaminn. Ég örvænti stundum út af líkamanum mínum;hrukkunum, pokunum undir augunum og signum rassinum. Og oft verð ég forviða yfir gömlu konunni sem á heima í speglinum (og líkist móður minni). En ég dvel ekki yfir þessum atriðum lengi. Ég myndi aldrei vilja skipta á ótrúlegu vinum mínum, yndislegu lífi mínu eða ástkærri fjölskyldu minni fyrir færri grá hár eða flatari maga. Eftir því sem aldurinn færist yfir hef ég orðið vinsamlegri við sjálfa mig, og þar með gagnrýnt sjálfa mig minna. Hef orðið minn eigin vinur. Ég skamma ekki sjálfa mig fyrir að borða þessa auka kökusneið eða fyrir að búa ekki um rúmið mitt. Eða fyrir að kaupa þessa kjánalegu eðlu úr steypu, sem mig vantaði ekki en tekur sig svo fjandi vel út á veröndinni hjá mér. Ég á rétt á að verðlauna sjálfa mig, leyfa mér ýmislegt. Vera drusluleg, Vera glæsileg. Ég hef séð of marga kæra vini yfirgefa þennan heim of snemma; áður en þeir skildu hversu dásamlegt frelsið er sem fylgir því að eldast. Hverjum kemur það við þó ég velji að lesa eða leika mér í tölvunni til klukkan fjögur að nóttu og sofa svo fram að hádegi næsta dag. Eða ef mig langar til að dansa við sjálfa mig við lögin sem vermdu topp vinsældarlistanna 1960/70. Og ef mig langar um leið að væla yfir glataðri ást.. þá geri ég það. Ég mun ganga eftir strönd í baðfötum sem eru strekkt yfir misvel staðsett aukakílóin og ég mun stinga mér í öldurnar af vítaverðu kæruleysi ef mig langar, þrátt fyrir samúðarfullt augnaráð þotuliðsins. Þau munu líka verða gömul. Ég veit að ég er stundum gleymin. En þegar öllu er á botninn hvolft er sumt í lífinu betur gleymt en geymt. Og öllu jafna man ég það sem skiptir máli. Auðvitað hefur hjarta mitt brostið nokkrum sinnum í gegnum árin. Hvernig er hægt að komast hjá því þegar þú missir einhvern sem þú elskar, barn þjáist eða jafnvel þegar gæludýrið þitt til margra ára verður fyrir bíl og endar lífið? Brostin hjörtu eru það sem gefur okkur styrk, skilning og samkennd með öðrum. Hjarta sem aldrei hefur brostið er ósnert og dauðhreinsað og mun aldrei kynnast gleðinni í því að vera ófullkominn. Ég hef verið blessuð til að lifa nógu lengi að sjá hár mitt verða grátt og æskuhlátur minn geymdan að eilífu í djúpu línunum í andliti mínu. Svo margir hafa aldrei hlegið. svo margir hafa dáið áður en hár þeirra fékk silfurgráan tón. Eftir því sem þú eldist, því auðveldara er að vera jákvæður. Þér stendur meira á sama hvað aðrir hugsa. Ég efast ekki um sjálfa mig lengur. Ég hef unnið mér inn réttinn til að hafa rangt fyrir mér. Svo að hér kemur svarið við spurningunni: Mér líkar vel að vera gömul. Það hefur frelsað mig. Mér líkar vel við þá manneskju sem ég hef orðið. Ég mun ekki lifa að eilífu, en á meðan ég er hér enn, mun ég ekki eyða tíma í að syrgja hvað hefði getað orðið eða hafa áhyggjur af hvað verður. Og ég ætla að borða ábæti og eftirrétti alla daga ef mig langar til. Höf. ókunnur. </description>
Jólin
      <description>  Ástin skilur svo auðveldlega  Það sem þú sérð er minnsti hlutinn; Þú þarft ekki að hafa jólin í höndum þér Ef þú hefur jólin í hjarta þér.   (höfundur óþekktur)</description>
Eilífðarhamingja
      <description>      P {  MARGIN-TOP: 0px; MARGIN-BOTTOM: 0px }      Eilífðarhamingja.   Þegar ég var yngri, vóg ég nokkrum kílóum minna. (júúúúúú alveg satt)Ég þurfti aldrei að  halda maganum inni þegar ég fór í þröngan kjól.  En nú, þegar ég er orðin eldri, hefur líkami minn brotist til frelsis. Og um  þann hluta hans sem einu sinni var mitti, eru þægileg teygjanleg efni.  Ítölsku skórnir þurfa að vera tveim númerum stærri en áður, ef ég kem þá  fótunum yfirleitt í þá, og skrefbótin á sokkabuxunum sígur allt of oft niður  undir hné.  En ég hef einnig lært að það skiptir engu máli hvað gerist, eða hversu DIMMT  virðist yfir öllu í dag.Lífið heldur áfram og á morgun kemur betri dagur.  Ég hef lært, að það segir mikið til um manneskjuna hvernig hún bregst við  þessum þremur hlutum: 1. Rigningardegi 2. Týndum farangri 3. Flæktu  jólatrésskrauti  Ég hef lært, að óháð því hvernig samband okkar er við foreldra okkar, komum  við til með að sakna þeirra, þegar þau eru horfin á braut.  Ég hef lært, að það að verða sér úti um peninga og hluti, er ekki það sama og  að skapa sér líf ! Ég hef lært, að af og til býður lífið okkur upp á annað tækifæri. Ég hef lært, að maður getur ekki farið í gegnum lífið með hornabolta-hanska á  báðum höndum. Öðru hvoru verður maður líka að gefa boltann til baka.Ég hef  lært, að þegar ég ákveð eitthvað beint út frá hjartanu, þá hef ég yfirleitt hitt  á hina einu réttu ákvörðun. Ég hef lært, að þó að ég sé sár, þurfi ég ekki að særa aðra. Ég hef lært, að á hverjum degi eigi maður að rétta öðrum höndina. Allir  þurfa hlýjar hugsanir og vinalegt klapp á axlirnar. Ég hef lært, að ég er  alltaf að læra eitthvað nýtt. Ég hef lært, að það sem þú segir og gerir vill gleymast, en fólk gleymir ekki  hvernig þú lætur því líða. Sendu þessa orðsendingu til að minnsta kosti fimm frábærra kvenna í dag  og eitthvað gott verður á vegi þínum... Þú hefur í það minnsta sagt öðrum konum  að þér finnst þær frábærar, og kannski færðu þær til að brosa. En ef þú ekki  gerir þetta... þá bilar rennilásinn og sokkabuxurnar rúlla niður á hæla, þangað  sem ítölsku skórnir meiða þig...!!  Kveðja til ykkar allraÁrný Bára</description>
Ótitlað
      <description>Í dag er alþjóðlegur dagur  brjálæðislega glæsilegra og geysilega gáfaðra kvenna  Því eiga allar  slíkar konur skilið að fá þetta skeyti í tilefni dagsins. Það er óþarfi að  senda mér til baka þar sem ég hef þegar fengið skeytið frá einni  brjálæðislega glæsilegri og geysilega gáfaðri konu!  En mundu boðorðið:  Lífið á ekki að vera rólyndis rölt að grafarbakkanum með það að markmiði að  komast örugg á áfangastað í huggulegum og vel varðveittum líkama. Miklu  heldur á það að vera blússandi gleðibuna og ískrandi yndisflug með súkkulaði  í annarri og vínglas í hinni í fullnýttum og gatslitnum skrokki öskrandi...  Fjárans fjör sem þetta er! Fékk þetta sent frá góðri vinkonu og langaði að deila þessu með ykkur kvÁrný Bára </description>
Ótitlað
      <description>           Systur að eilífuUng kona var í heimsókn hjá móður sinni og  drakk íste til þess að kæla sig í mesta sumarhitanum.Um leið og þær töluðu um lífið, hjónabandið, ábyrgðina og skuldbindingar fullorðinsáranna hristi móðirin klakamolana  í glasi sínu svo að telaufið þyrlaðist upp og leit hreinskilnislega á dóttur sína: "Gleymdu ekki systrum þínum, þær verða  því mikilvægari sem þú eldist. Einu gildir hversu mikið þú elskar manninn þinn eða börnin sem þú kannt að eignast, þú munt alltaf þarfnast systra. Mundu t.d. eftir að lyfta þér upp með þeim. Með systrum á ég við ALLAR konurnar í lífi þínu. Ég á við vinkonurnar, dætur þínar og aðrar konur sem þér eru tengdar blóðböndum. Þú munt þarfnast annarra kvenna. Þannig er þetta bara."    "Þetta er skrýtið ráð," hugsaði unga konan. "Ég er nýgift, nýkomin inn í hjónaheiminn. Nú er ég gift kona, svo sannarlega fullorðin manneskja. Maðurinn minn og fjölskyldan sem við vonumst til að eignast verða allt sem skiptir máli í lífi mínu."Þótt unga konan væri ekki ginnkeypt fyrir ráðum móður sinnar í þetta sinn fór þó svo að hún tók mark á henni. Hún ræktaði sambandið við systur sínar og eignaðist fjölda vinkvenna. Þegar tímar liðu varð henni ljóst að mamma hennar hafði rétt fyrir sér. Tíminn og framvinda lífsins marka spor á konur en systur eru óumbreytanlegar. Sannleikurinn kristallast í eftirfarandi:Tíminn líður hjá, lífið á sér stað, fjarlægðir skilja menn að, börn vaxa úr grasi, atvinnutækifæri koma og fara, ástin getur orðið að vana, menn gera einfaldlega ekki það sem vænst er af þeim, hjörtu bresta, foreldrar deyja, samstarfmenn gleyma greiðunum sem þeim eru gerðir og framabrautin tekur enda EN Systur eru enn til staðar óháð tíma og fjarlæg. Góð vinkona er aldrei í meiri fjarlægð en svo að það megi nálgast hana á einhvern hátt.  Þegar erfiðleika  ber að höndum og þú ert ein þíns liðs þá bíður ævinlega einhvers staðar systir með útrétta arma þér til hjálpar. Stundum eru þær jafnvel reiðubúnar að ganga með þér spölkorn eða líta við og rjúfa þar með  einmanaleikann..    Vinkonur, dætur, ömmustelpur, tengdadætur, systur, mágkonur mæður, ömmur, föðursystur, móðursystur, systradætur, bróðurdætur og frænkur af ýmsu tagi í stórfjölskyldunni eru okkur öllum til blessunar. Veröldin væri önnur án kvenna. Þegar við lögðum af stað í það ævintýri sem fylgir því að vera kona þá höfðum við litla hugmynd um þá gleði og sorg sem fram undan væri. Við gerðum okkur heldur ekki grein fyrir hversu mjög við kynnum að þarfnast hver annarrar. Þannig verður það áfram.Athugaðu:    Sendið þetta áfram til þeirra kvenna sem skipta máli í lífi ykkar. Í stuttu máli sagt: Hugsaðu þér að það séu 20 englar í heiminum. Tíu sofa í ró á skýjunum, níu leika sér og einn les núna rétt í þessu tölvupóst dagsins um systur. Fékk þetta sent frá góðri vinkonu og langaði að deila þessu með ykkurkvÁrný Bára</description>
Gleðileg jól
      <description>Árný Bára , Ægir og fjölskylda, óska öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári, með þökk fyrir auðsýnda samúð og vinahug.</description>
Gleði og sorgir
      <description>      Deildu gleði þinni með öðrum  og hún mun tvöfaldast. Deildu sorg þinni með öðrum  og hún mun minka um helming. </description>
SORG OG GLEÐI
      <description>   Gleðin    Þegar þér um síðir auðnast að treysta gleðinni og faðma hana að þér,  muntu komast að því að allt líkt og stígur dans við þig. Við njótum aðeins til fulls þeirrar gleði sem við veitum öðrum. Engin tilfinning er eins full tálvona og gleðin. Engin skylda er eins vanmetin og sú að gleðjast yfir litlu. Gleðin er hið eina sem maður getur ekki gefið öðrum, nema maður eigi hana sjálfur. Njóttu gleði augnabliksins þannig  að þú spillir ekki  þeirri gleði er síðar kemur. Sönn gleði er alvöru mál. Ef við ýktum gleði okkar í sama mæli og sorg okkar,  myndu erfiðleikar okkar ekki vera umtalsverðir. Það sjást engin ummerki í loftinu eftir vængi mina, en gleði mín stafar af fluginu. Mörg gleðin er ekki metin að verðleikum, vegna þess að hún kostar ekki neitt. Þegar bikar lystisemdanna hefur verið tæmdur  sést ekki til botns í gleðinni. Í skjóli gleðinnar verða allir menn bræður. Sá sem ann sér þeirrar gleði að gleðjast yfir gleði annarra eyðir öfundinni eins og sólin eyðir myrkrinu. Kvartaðu ekki yfir því að rósarunnarnir hafi þyrna,  gleðstu heldur yfir því að þeir skulu hafa rósir.  Mundu að þögnin er stundum besta svarið.     Sorgin   Bara að sorgir og áhyggjur nýja árssins standi jafn stutt og áramóraheitin. Hryggðinni er skipt jafnara en menn halda. Að hafa áhyggjur er að hylja sólskin dagsins undir skýjum morgundagsins. Því dýpri sem sorgin er þess fámálli er hún. Sjái maður sorgir sínar gegnum glasbotn sýnast þær stærri. Sorgin er einskonar ryð sálarinnar,  sem hver ný hugmynd á þátt í að hreinsa burt. Hlátur og grátur, unaður og sársauki eru systkinabörn. Verði maður fyir sorg má maður ekki segja:  hvers vegna þurfti þetta að koma fyrir mig?   nema maður leggi sömu spurningu fram  í hvert sinn sem maður gleðst yfir einhverju. Þau sár sem blæða inn eru hættulegust.   TÁR.   Tárin sem menn kyngja eru miklu beiskari en þau sem þeir fella. Tárin koma í veg fyrir að sorgin snúist í örvæntingu. Tár vor þorna fljótt,  einkum ef það er sorg annarra sem hefur komið þeim út á okkur.     </description>
Ótitlað
      <description>Sérhver dagur mannlífsins felur í sér gleði og angur,  kvöl og sælu myrkur og ljós, vöxt og hrörnun.  Hvert andartak er mótað eftir stórbrotnu sniði náttúrunnar  -reyndu ekki að afneita eða standa á móti  reglufestu alheimsins.    </description>
ÁRNI SNÆR 10 ÁRA Í DAG
      <description>   Komið þið sæl og blessuð.    10 ÁRA                       Já hann Árni Snær okkar er 10 ára í dag 23,11,2008Mikið er þetta fljótt að líða. Ég man þega hann fæddist fyrir 10 árum og þá vorum við hjónin stödd í Mexico.Drengurinn átti sko að koma í heiminn áður en við færum út, en honum þóknaðist það ekki þannig að afi og amma voru komin til Mexico þegar hann kom í heiminn. Mamma mín var með Elínu Sigríði þann tíma sem beðið var eftir barninu og áttu þær góðar stundir saman, bæði á Akranesi og í Reykjavík. Pabbi var á spítala líka, þannig að það var í nógu að snúast hjá mömmu. En auðvitað kláraði mamma  sig að þessu öllu með stæl og tók á móti drengnum, klippti á naflastrenginn og baðaði og allt. Takk fyrir kæra mamma. Og svo þegar drengurinn var mættur í heiminn þá var hringt til Mexico og hann grenjaði í símann og amma grét á móti ..... oh mikið drama.....Já við vorum allt of langt í burtu. Elsku Elín mín til hamingju með fallega drenginn þinn.                                Knús, knús, knús, Bestu kveðjurPabbi og mamma .  Elsku Árni Snær til hamingju með afmælið uppáhalds drengurinn okkar.Eigðu góðan dag. knús og kossar  frá afa og ömmu í Ólafsvík     </description>
      <description>  Jæja krakkar mínir .Þá er best að setja eitthvað hérna inn.Af okkur er allt gott að frétta. Ég fór í þetta líka fína skvísupartý síðastliðinn laugardag, hjá henni Rut vinkonu minni. Rut er  æskuvinkona mín frá Fáskrúðsfirði.Þetta var bara gaman. Flestar gellurnar þarna voru frá Fáskrúðsfirði þannig að það var mikið spjallað og mikið hlegið.Frábær matur og meðlæti.Ummm aldeilis frábært kvöld.Takk fyrir mig Rut.Eiður, heittelskaður eiginmaður Rutar (50)  var yfirgrillari. Og eins og haninn í hænuhópnum.  Jæja það er rok og rigning hérna.Að vanda.     Fór í ræktina í morgun. vel tekið á því hjá okkur Kötu.Læri og magi. Saumaði þennan líka flotta bútasaumsdúk á eldhúsborðið hjá mér í gær og kláraði bútasaumsteppið fyrir Ragnheiði Mist.Teppið átti hún að fá þegar hún fæddist þann 26.07.08. Ó JÁ ÞANNIG ER NÚ ÞAÐ.En betra er seint en aldrei. Jæja þetta fínt í bili. Set hérna inn nokkur spakmæli ( ef spakmæli má kalla) Heima er best í hófi.Þegar neiðin er stærst er hjálpin fjærst.Oft er bankalán ólán í láni.Betra er að fara á kostum en taugum.Víða er þvottur brotinn.  Egið góðan dagkvadda bara</description>
Kreppa og kreppa ?
      <description>Smá dæmisaga vegna hinnar svokölluðu "kreppu"  Íslensk kona hefur verið að styrkja námsmann í Uganda sem "óvænt varð á vegi hennar" eins og hún orðaði það. Hann var búinn að lofa að senda henni einkunnirnar sínar sem hann og gerði þegar þar að kom. Þar kom fram að hann hafði fengið A í öllum fögum og góða umsögn að auki. Það var nefnilega búið að gera honum ljóst að góður árangur væri lykillinn að því að hann fengi áframhaldandi styrk. En allt er breytingum undirorpið í henni veröld og ýmislegt getur vissulega haft áhrif á afkomu Frónbúans og getu hans til að láta gott af sér leiða. Hún var að velta því fyrir sér hvort rétt væri að reyna að segja honum frá gangi mála hér á landi, þ.e. kreppunni og öllu því. Og það gæti því miður reynst nauðsynlegt að skera eitthvað niður styrkinn vegna hins breytta ástands hérna megin. Það eru nefnilega tiltölulega litlar líkur á því að fréttir af Íslenska skipbrotinu hafi borist alla leið til hans þarna í Entebbe. Og svo er alls ekki víst að hann skilji alvöru málsins á sama hátt og við hér heima. En ef reynt væri að útskýra hið Íslenska kreppuástand fyrir honum sem virðist ætla að fara langt með að sliga þjóðina einhver þó nokkur ár inn í framtíðina, gæti það samtal orðið á eftirfarandi nótum.*Heyrðu félagi, það er úr vöndu að ráða. Íslenska þjóðin er gjaldþrota!Hvað segirðu, en leiðinlegt að heyra, eigið þið þá ekki fyrir baunum og maís?*Jú reyndar eru búðir fullar af mat og enginn vöruskortur.Hvað segirðu, þið eigið þá mat. Það er gott. En eigið þiðþá ekki þak yfir höfuðið lengur!*Jú við eigum reyndar íbúð eins og flestir og það eru fáir heimilislausir á Íslandi.En hvað segirðu mér þá? Gengur plága yfir landið, eru allir veikir og heilbrigðiskerfið lamað?*Nei nei reyndar ekki, við fáum nánast ókeypis læknaþjónustu og erum með ágætt heilbrigðiskerfi.Nú jæja. Það var gott að heyra. En eru þá skólarnir að loka og fá kannski ekki allir tækifæri til að læra að lesa lengur og sérstaklega þá ekki konur.*Jú reyndar er 99,9% læsi á Íslandi og menntakerfið er ágætt, margir með háskólagráður og konur ekki síður en karlar.Það er nú gott, en þið verðið þá að passa er að lenda ekki í stríði við nágrannaþjóðir ykkar.*Uuuu við erum reyndar ekki með her og teljumst nú frekar friðsæl þjóð. En við þurfum bara að hlusta á bullið og stríðsyfirlýsingarnar í fíflinu honum Gordon Brown. Það er það sem við munum líklega komst næst því að fara í stríð.Ok. Segðu mér nú samt ekki að þið komist ekki í hreint vatn.*Við eigum reyndar besta vatn í heimi.Nú, er vegakerfið þá ónýtt? Hérna í Afríku ganga allir eða nota asna og stundum reiðhjól. Það eru líka til strætisvagnar hérna, en þeir eru alltaf yfirfullir.Eru kannski strætóarnir hjá ykkur hættir að ganga?*Neeee... Það er verið að ræða um hvort almenningssamgöngur hér eigi að vera ókeypis, en það eru flestallir vegir malbikaðir og næstum allir eru á nýlegum bílum.Eigið þið þá enga peninga til að gera ykkur glaðan dag? Ég meina, þú sagðir að þjóðin væri gjaldþrota.*Flestir eiga reyndar einhvern sparnað á bókum þó sumir hafi tapað honum eða hluta hans síðustu daga. Það verður alla vega erfitt að kaupa stærri flatskjái og utanlandsferðunum verður að fækka.Já, ég á kannski einhvern tíma eftir að fara til útlanda, en ég er nú líka frá Uganda. Hefur kannski enginn vinnu og þurfið þið núna öll að betla?*Neiiij...! Atvinnuleysið er um 2% en við verðum að flytja Pólverjana aftur heim og fara sjálf að vinna vinnuna sem þeir unnu.Hmmm... Svo þið hafið peninga, mat, húsaskjól, heilbrigðiskerfi, menntakerfi, búið við frið, eigið nóg hreint vatn og samgöngur eru góðar.Segðu mér, hvert var vandamálið aftur?    Já það er spurning.kvÁrný Bára</description>
Hamingjan
      <description>Hamingjan er umfram allt fólgin í því einfalda og fábreytta: vínglasi, bökuðum hnetum, ofurlitlu glóðarkeri, nið frá sjónum... Allt sem til þarf er að þú gleymir ekki að hamingjan er hér og nú - að bústaðurinn sem hún kýs sér er einfalt og fábreytt hjartalag. Nikos Kazantzakis Eigið góðan dagkvÁrný Bára</description>
Litla syndin ljúfa
      <description>       Halló kæru vinir.Langaði að deila þessari dásmlegu synd með ykkur.Já það eru líka  til dásmlegar syndir í þessari krepputíð.Njótið þessarar syndar í botn og allt verður ljúft og gott .(alla vegana í smá tíma)              Litla Syndin ljúfa     Óskilgreindar uppskriftir       góður og einfaldur eftirréttur sem allir ættu að gera         140 g smjör, og meira til að smyrja formin 140 g 70% Nóa Síríus Súkkulaði 2 egg 3 eggjarauður 140 g flórsykur 60 g hveiti    -->  LITLA SYNDIN 140 g smjör, og meira til að smyrja formin 140 g 70% Nóa Síríus Súkkulaði 2 egg 3 eggjarauður 140 g flórsykur 60 g hveiti Hitið ofninn í 220 gráður (ekki nota blástur). Smyrjið 6 lítil soufflé-form eða bolla vel með smjöri ( Ef notuð eru annars konar form er ráð að prófa að baka eina synd til að bökunartíminn passi örugglega.) Setjið smjör og súkkulaði í pott og bræðið við vægan hita. Takið af hitanum um leið og smjörið er bráðið og hrærið þar til súkkulaðið er alveg bráðið. Þeytið egg og eggjarauður í skál og setjið svo flórsykurinn út í og þeytið vel. Hellið súkkulaðiblöndunni saman við og þeytið á meðan og hrærið að lokum hveitinu saman við. Skiptið deiginu jafnt í formin (rúmlega 1 dl í hvert form) og gætið þess að fylla þau ekki alveg. Setjið formin á plötu eða í ofnskúffu og bakið kökurnar í 11-12 mínútur (án blásturs). Ef deigið hefur verið geymt í kæli þá er bökunartíminn 13-14 mín (jafnvel 15 mín. ef það var í formunum og í kæli). Takið þær út og látið kólna í 3 mínútur. Rennið hnífsblaði í kringum kökurnar til að losa betur um þær og hvolfið þeim á diska. Sigtið e.t.v. svolítinn flórskykur yfir og berið kökurnar fram t.d með hindberja- eða vanillusósu og e.t.v berjum eða öðrum ávöxtum. Gott að bera fram með vanilluís </description>
Vinátta og virðing
      <description>      Sýnið hvert öðru hlýhug, elsku, vináttu og virðingu!   Með því að virða tilfinningar, vilja og ákvarðanir náungans, gerum við lífið þess virði að lifa því!   Sendu náunganum bros, það getur bjargað degi hans/hennar!  Faðmaðu einhvern á hverjum degi, segðu honum/henni að þér þyki vænt um hann/hana!   Þú ert sérstök/sérstakur, láttu aðra finna að þér finnist þeir líka sérstakir!  Með vináttu og kærleik, sem ekki kostar neitt, getur maður gert stóra hluti.</description>
Haustið.
      <description>    Gaman saman   Góðan dag kæru vinir. Þá verður maður bara að setja eitthvað hérna inn fyrir ykkur.Við mæðgur (ÉG, Elín Sigríður og Steinunn Bára ) fórum saman á tónleikana með Villa Vill.Bara frábært. Aldeilis flottir tónleikar það.  Nú það var hætt við ferðina til St.John's þannig að við hjónin förum ekki þangað í ár.En það átti að fara þann 29.okt-3.nóv . EN, Því miður hefur ferðin verið felld niður vegna alþekktra aðstæðna í þjóðfélaginu.Svona fór um sjóferð þá. Verra gat það nú svosem verið.Þá eru það haust verkin í ár. Ekkert slátur tekið, en við hjónakornin tókum tvær rollur og hökkuðum þær í spað í gær, ´´brjálað að gera í sveitinni´´.  Það sem er að frétta af ömmu og afa börnum er að Árna Snæ gengur vel í skólanum, svo er hann er að æfa karate og badminton. Já og gæinn er að verða 10 ára í nóvember. Ragnheiður Mist er dugleg að borða (drekka) og dafnar vel. Alveg að verða 3ja mánaða stúlkan.  Pabbi minn kær og góður er búinn að vera á spítala, fór í hjartaþræðingu og þar voru nokkrar æðar sem þurfti að hreinsa.  Jæja elskurar hef þetta ekki meira í dag. Ætla að fara að hringja í þau gömlu (pabba og mömmu) og athuga hvernig heilsufarið er á þeim hjónum.Eigið góðan dag kvAdda Bára</description>
Árni Snær og Ragnheiður Mist
      <description>Árni Snær og Ragnheiður Mist í heimsókn hjá ömmu og afa í Ólafsvík</description>
Góður dagur
      <description> Góðan dag  Ég vakna þennan morgun og vel að hann sé góður vel að hann sé yndislegur, myrkur og hljóður ég vel að kúra um stund og staðnæmast við það hve stórkostlegt sé lífið ef fátt amar að.   Ég ákveð því að velja að vandamálin fá vistuð séu hjá mér til þess eins að ljá tilverunni ennþá fleiri tilbrigði og fleti ég tek þeim opnum örmum svo nýtt mér þau ég geti. Og eftir litla stund ég vel að fara á fætur faðma þennan morgun og allar hans rætur hita mér gott kaffi af kærleik þess ég nýt kex smyr með osti í blöðin svo ég lít. Að endingu ég segi við þig sem þetta lest þetta er góður dagur, hafðu það sem best ég óska þess að hugsanir fallegar þig finni ég faðmlag þér sendi og kveð þig að sinni.Fékk þennan póst í morgun.Gott innlegg í góðan dag.</description>
Ótitlað
      <description> Dæmdu aldrei í reiði!  Reiðin líður hjá en dómurinn stendur eftir.   Ef maðurinn finnur ekki frið í sjálfum sér, er tilgangslaust fyrir hann að leita hans annars staðar.</description>
Ótitlað
      <description>   Þú verður að taka persónulega ábyrgð. Þú getur ekki breytt kringumstæðunum, árstíðinni eða veðrinu, en þú getur breytt sjálfum þér  -</description>
      <description>    Virðingin kyssir ennið á. Auðmýktin hönd að vörum brá.Aðdáun vanga velur sér.Vináttan kyssir hvar sem er. Ástin er frekast að því kunn,að hún vill kyssa beint á munn.-Fífulogar. 1945-       </description>
Ótitlað
      <description>        Spakmæli dagsins.                 Hamingan er heimafengin og verður ekki tínd í garði annarra.    </description>
Kæja og Ægir í Skálholtinu
Ótitlað
      <description> Spakmæli dagsins! Óttastu aldrei andstöðu. Mundu að flugdreki hefst ekki á loft með vindiheldur á móti honum -Höfundur ókunnur.</description>
Ótitlað
      <description>                Fékk þetta sent frá góðri vinkonu.Langaði að deila þessu með ykkur.Rósin Á fyrsta skóladegi mínum í framhaldsnámi hvatti kennarinn okkur til að kynnast nýju fólki gefa okkur á tal við ókunnuga og opna fyrir nýja vináttu og vingjarnleika. Ég stóð upp og leit í kringum mig en þá fann ég fyrir hönd á öxlinni minni og leit við.  Þarna stóð mjög gömul kona sem brosti eins og sólin framan í mig; Hæ myndarlegi strákur!, sagði hún. Ég heiti Rósa, ég er 87 ára. Má ég faðma þig? Ég hló og jánkaði og hún kreisti mig að sér. Hvers vegna ertu í skóla svona fullorðin?, spurði ég. Hún svaraði glaðlega; Því ég ætla að ná mér í ríkan eiginmann hérna og eignast með honum nokkur börn! Nei, í alvöru? spurði ég. Hún svaraði; Mig langaði alltaf í stúdentspróf og nú læt ég þann draum rætast! Við gengum saman um ganga skólans, spjölluðum og urðum strax perluvinir. Eftir þetta hittumst við alltaf, alla daga og töluðum út í eitt. Mér fannst frábært að hlusta á hana og læra af henni. Hún varð vinsælasti nemandi skólans, alls staðar geislaði hún vingjarnleika sínum til fólks. Hún elskaði að punta sig og naut sín í félagsskap okkar unga fólksins. Í lok skólaársins vildum við nemendurnir að hún flytti lokaræðu nemenda á skólaslitunum. Hún kom í ræðustólinn og flutti ræðuna blaðlaust; Við hættum ekki að leika okkur af því að við verðum gömul. Við verðum gömul af því að við hættum að leika okkur. Það eru aðeins fjögur leyndarmál til að halda sér ungum, vera ánægður og ná árangri. Þú verður að hlæja alla daga og sjá spaugilegar hliðar á öllum hlutum. Þú verður að eiga þér draum. Ef þú átt þér ekki draum þá áttu ekkert líf. Það eru svo margir lifandi dauðu lífi en fatta það ekki. Það er engin gleði, enginn draumur. Engin tilbreyting. Það er mikill munur á því að eldast og vitkast eða bara að eldast og verða gamall. Ef þú ert 19 ára,liggur í rúminu, gerir ekkert af viti í heilt ár, þá verðurðu auðvitað tvítugur ári seinna. Og ef ég er 87 ára og ligg í rúminu í heilt ár, þá verð ég auðvitað 88 ára, einu ári seinna. Allir geta elst. Það þarf enga hæfileika til þess eða hæfni. Best er þó að eldast með því að finna hvernig tíminn sem líður er tækifæri til breytinga. Þá er hreyfing á lífi þínu en ekki stöðnun. Lifðu þannig að þú gerir alltaf þitt besta, aldrei að sjá eftir neinu. Þegar eldra fólk lítur tilbaka sér það sjaldnast eftir því sem það gerði í lífinu heldur því sem það gerði ekki. Þeir sem óttast dauðann eru yfirleitt þeir sem láta ekki drauma sína rætast, þeir lifðu ekki til fulls. Í lok ræðunnar söng Rósa og hvatti nemendur til að vanda hvern dag sem þeir lifðu   Lifa 100% lífi, eins og sá dagur væri sá síðasti. Viku eftir útskrift lést Rósa í svefni, hún sofnaði mjúklega inn í himnaríki.  Yfir 2.000 nemendur fylgdu henni til grafar og sýndu orðum hennar virðingu; Það er aldrei of seint að vera sá/sú sem þú í rauninni ert. Þessi orð fara nú manna á milli í minningu Rósu. Þú mátt senda þau áfram til þeirra sem þú vilt blessa. Og mundu- að eldast er óhjákvæmilegt en að eldast og vaxa í visku er val. Með því að gefa fáum við tilbaka. God promises a safe landing, not a calm passage. If God brings you to it, he will bring you through it. Góðir alvöru vinir eru eins og stjörnur á himni sem þú veist af en sérð ekki alltaf.  Þeir skína best í myrkri, þegar þú þarft mest á þeim að halda. Þú ert stjarnan mín.   </description>
Ragnheiður Mist Reykdal
      <description>Heil og sæl öll sömul.Best að setja nokkrar línur hérna inn, því ég veit að nokkrir fjölskyldumeðlimir og nokkrir nánir vinir eru duglegir að koma hérna inn og ætlast til þess að ég hafi eitthvað að segja.Þann 20.sept þá var hún Ragnheiður Mist skírð í Ólafsvíkurkirkju.Það hefði mátt vera betra veður, en það kom ekki að sök því það var góð mæting .Ættingjar og vinir úr Reykjavík fjölmenntu sem og vinir úr Ólafsvík.Set hérna inn nokkrar myndir af skvísunni Ragneiði Mist Reykdal.Ragnheiður Mist og Lóa amma  Ragnheiður Mist</description>
Ótitlað
      <description>Um Hamingjuna Við teljum okkur trú um að lífið verði betra eftir að við: göngum í hjónaband, eignumst barn og síðan þegar við eignumst annað barn. Síðan verðum við ómöguleg yfir því að börnin eru enn svo ung og teljum að við verðum miklu ánægðari er þau eldast. Þegar það gerist verðum við pirruð á því að þurfa að takast á við unglingana okkar og teljum okkur verða ánægðari þegar þeir vaxa upp úr því aldursskeiði. Við teljum okkur trú um að við munum öðlast meiri lífsfyllingu loksins þegar: maki okkar tekur sig taki, þegar við fáum betri bíl, þegar við komumst í almennilegt frí eða þegar við setjumst í helgan stein.Sannleikurinn er sá að það er ekki til betri tími til að verða hamingjusamur heldur en einmitt núna!........ Því ef ekki núna..... hvenær þá? Lífið er alltaf fullt af vandamálum. Það er best að horfast í augu við það og ákveða að vera hamingusamur þrátt fyrir það. Alfred D. Souza sagði eitt sinn: "Lengi vel fannst mér alltaf sem lífið væri rétt að byrja - þetta eina sanna líf. En það var alltaf eitthvað sem stóð í vegi fyrir því, eitthvað sem þurfti að yfirstíga fyrst, einhver ókláruð mál, tími sem þurfti að eyða í eitthvað, ógreiddar skuldir. Síðan myndi lífið byrja. Dag einn rann það upp fyrir mér að allar þessar hindranir voru lífið sjálft." Þetta viðhorf hjálpar okkur að skilja að það er engin leið að hamingjunni. Hamingjan er leiðin. Njótum hverrar stundar sem við eigum. Njótum hennar enn frekar þegar okkur tekst að deila henni með öðrum sem er nógu sérstakur til að verja tíma okkar með . og munum, að tíminn bíður ekki eftir neinum. Áttu að bíða þar til þú hefur lokið námi eða þar til þú hefur hafið nám, þar til þú hefur misst fimm kíló eða bætt á þig fimm kílóum, þar til þú hefur eignast börn eða þar til þau flytjast að heiman, þar til þú byrjar að vinna eða þar til þú sest í helgan stein, þar til þú giftist eða þar til þú skilur, þar til á föstudagskvöld, þar til á sunnudagsmorgun, þar til þú færð þér nýjan bíl eða hús, þar til þú hefur borgað upp bílinn eða húsið, þar til í vor, þar til í sumar, þar til í haust, þar til í vetur, þar til lagið þitt byrjar, þar til þú ert búin að fá þér í glas, þar til runnið er af þér, þar til þú deyrð, þar til þú fæðist á ný . til þess eins að ákveða að það er enginn tími betri til að vera hamingjusamur en einmitt núna! Hamingjan er ferðalag ekki áfangastaður Til umhugsunar að lokum! "Sinntu starfi þínu eins og þú þarfnist ekki peninganna." "Elskaðu eins og þú hafir aldrei verið særð(ur)." "Dansaðu eins og enginn sjái til þín." </description>
Ótitlað
      <description>Nýja daman.</description>
Ótitlað
JÆJA KRAKKAR MÍNIR
      <description>JÆJA KRAKKAR MÍNIR!!!Þá erum við hjónin komin heim úr frækilegri hjólaferð til Austurríkis.Hafi Bolzano - Feneyja ferðin í fyrra verið flott þá var þessi ferð topp 10+++.  EEEEEN þessi ferð var mun erfiðari en við héldum ''hjólagarparnir '' .Við héldum að við værum að fara að taka nokkrar Geirakotsbrekkur en það voru voða fáar svoleiðis brekkur. Flestar brekkurnar voru eins og Klifið eins og það leggur sig eða Grundarbrautin og þegar þú hélst að nú værir þú kominn á toppinn þá kom smá beygja og svo önnur og stundum önnur úff!úff!  S S S SEn svo varstu allt í einu kominn á toppinn. JIBBÍ !! JÚHÚ !!! KOMIN UPP OG ÞÁ VAR  BARA AÐ FARA NIÐUR.JEBB BARA NIÐUR!!! En kæru vinir, í Austurríki var ekki bara að fara niður brekkuna neeeei , það var alltaf smá upp líka þó svo að þú værir að fara niður. Maður var gasalega glaður að láta sig renna niður þá heyrði maður kallað fyrir framan sig, HÆÐ framundan !! NEIIII NEIIIIII ÞAÐ ER BREKKA !!! ÞAÐ ER  BREKKA!! . SETJIÐ Í 1-1 !!!!Ó JÁ !!!! OG MAÐUR BORGAR MORÐ FJÁR FYRIR ÞETTA.Svo voru það vötnin sem við vorum að fara að hjóla í kringum.(þetta var sko 10 vatna leiðin)Við héldum nottlega að vötnin væru eins og Vaðallinn, en það var nú öðru nær. Hvert vatn var eins og fjörður og við hvert vatn (fjörð) voru nokkrir bæjarkjarnar. JEBB STUNDUM VEIT MAÐUR  BARA EKKI BETUR.Í Þessari ferð voru hjólaðir 300 km.Við jónakornin erum alveg alsæl eftir þessa ferð og stefnum á að fara aftur að ári.Ferðafélagarnir voru alveg frábærir, mikið spaugað og mikið hlegið.Kæru hjón Anna og Laugi(50) takk fyrir góða ferð og frábæra samveru.kvAdda og Ægir </description>
AFMÆLI
      <description>STEINUNN BÁRA ER 25 ÁRA Í DAG TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN</description>
Ótitlað
      <description>Sælt veri fólkið .    Steinunn Bára og Gunni eignuðust alveg dásamlega fallega stúlku í morgun, 26.07.08 kl:07:57  Stúlkan var 3.590 gr. og  51 cm .Falleg og slétt með svart hár.Virkilega fallegt barn.Innilega til hamingju nýbakaðir foreldrar.Amma og afi geta ekki verið stoltari og montnari.Þá eigum við Ægir minn orðið  tvö barnabörn strák og stelpu.Þvílíkt ríkidæmi.Knús og kossar til allra Amma og afi í Ólafsvík</description>
Sumar og sól í Ólafsvík 
Ótitlað
      <description>Komið þið sæl og blessuð.  Þá er best að blogga smá.  Brúðkaupið búið og bæði sögðu já. þetta var feikna veisla og bara 100% mæting frá minni fjölskyldu. Sko frá okkur Ægi. Það var afskaplega gleðilegt því við erum ekki svo oft öll saman. þá er ég að tala um litlu fallegu fjöslskylduna mína.(ÉG, Ægir, börn og tengdabörn) Að vísu vantaði aðalgæann hann Árna Snæ en hann fór í útilegu þessa helgi.Brúðguminn eldaði allan matinn og var maturinn hreint út sagt alveg dásamlegur.Brúðhjónin voru líka alveg ferlega falleg og flott.Bara frábær veisla í alla staði og takk fyrir mig og takk fyrir góðan dag kæra fjölskylda.Af okkur er annars allt gott að frétta erum enn að bíða eftir næsta barnabarni, Vonandi fer það að láta sjá sig.Gott og gaman var á Ólafsvíkurvökunni.GLEÐI !!! GLEÐI!!! GLEÐI!!!SUMAR OG SÓL.Kær kveðjaÁrný Bára</description>
Ótitlað
      <description>                                                                                     Brúðkaup í dag  </description>
Ótitlað
      <description>Blogg, blogg, bloggJæja kæru vinir og allir bara.Þá er best að setja smá slúður á síðuna mína.Það er búið að vera brjálað að gera hérna á Holtabrúninni eftir að heittelskaður hætti á sjónum. Kvótinn var kláraður  um miðjan maí og fóru þeir  með Steinunni SH  í pössun til Njarðvíkur þar sem hún verður í sumar.Sjómannadagurinn liðinn og hann fór bara vel fram en það hefði mátt vera fleira fólk bæði í kirkju og í sjómannagarðinum. Ballið hjá okkur hérna í Ólafsvík var á laugardegi og það var matur og flottheit að vanda, góð skemmtiatriði hjá þeim sem stóðu að hátíðinni að þessu sinni. Hljómsveitin var frábær og það er langt síðan frú Árný Bára hefur dansað svona mikið.BARA GAMANEn við hjónakornin vorum nú farin heim af ballinu fyrir tvö þannig að allir voru klárir í messu og messu- kaffi á sjómannadaginn sjálfan.Hitti Gumma Gulla aðeins á ballinu en hann er að smíða bryggju hérna í Ólafsvík og hefur kíkt í heimsókn til okkar hjóna. Alltaf gaman að hitta Fáskrúðsfirðinga.Hann Ægir minn hefur nú líka verið að smíða fyrir sína ekta spúsu. Jaaaaá bara assskoti flott hjá honum. Settum svona trévegg , æ þið vitið, lóðin er í stöllum og það var orðið leiðinlegt að slá stallinn fyir framan eldhúsgluggann,  þannig að honum(stallinum)  var lokað með þessum líka fallega trévegg og þar fyrir neðan var sett svona líka fínt beð sem var fyllt af sjávarmöl, síðan  var brunað í bæinn og keyptar þessar líka fallegu styttur og settar í beðið. Bara ferlega flott þó svo ég segi sjálf frá. Þá er komið að jarðskjálfta dæminu, Elín Sigríður og fjölskylda búa í Hveragerði en það skemmdist ekki mikið hjá þeim í jarðskjálftanum  miðað við hjá mörgum öðrum. En lampar, speglar og fleira brotnaði og fullt af leirtaui og allt út um allt. En enginn meiddist þannig að það er fyrir mestu. Tryggingarnar eiga eftir að koma að skoða húsið,og það verður gert þegar þau koma heim, en þau áttu pantað far til Krítar og flugu þangað þann 4. júní og ætla að vera í hálfan mánuð. Heyrði í þeim í gær og bara sæla. Enginn jarðskjálfti. Steinunn Bára er búin að vera hérna hjá pabba og mömmu síðustu viku , en við mæðgurnar erum búnar að vera að þvo og strauja barnaföt, og sængurföt. Steinunn  Bára er sem sagt ófrísk og á að eiga um miðjan júlí. Er sett þann 13.Já það er nú betra að vera búin að gera allt klárt.Við hjónakornin erum nebl. að fara til Costa del sol þann níunda júní, og ætlum að vera í hálfan mánuð. Við verðum komin heim þann 23ja júní, og mætum í brúðkaup hjá fjölskyldunni minni,en Aðalsteinn bróðir minn og Linda kærasta hans ætla að ganga í heilagt hjónaband þann  28.júní n.k . Já svo förum við vonandi eitthvað með hjólhýsið  okkar í júlí, en við meigum ekki vera langt frá Reykjavík (skipun frá þeirri ófrísku) því við eigum að vera nálægt þegar barnabarn okkar no.2 kemur í heiminn.Við ætlum svo í hjólaferð í ágúst og  það verður hjólað í  Austurríki - tíuvatnaferð.Ég held að það verði bara  flott ferð.Já, þannig að þið fáið fréttir af öllum fjölskyldumeðlimium , þá er Ægir (20) að keyra hjá Samskipum og er bara sæll í þeirri vinnu.Jæja gott fólk þannig er nú lífið hérna í Ólafsvíkinni þessa dagana.Og bara fínt að blogga svona í morgunsárið.Bið að heilsa í bili.Verið góð hvert við annað.kvÁrný Bára p.s.Kæra Fjóla frænkaTakk fyrir að kíkk og kvitt á síðunakvÁrný Bára</description>
Sjómannadagurinn
      <description>  Sjómannadagurinn                                  Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur í fyrsta     skipti hinn     6. júní árið 1938. Sá dagur var mánudagur, annar í hvítasunnu. Næstu ár     var fylgt reglu sem á endanum var lögtekin árið 1987, að sjómannadagur     skyldi vera fyrsti sunnudagur í júní nema hvítasunnu bæri upp á þann     dag. Þá skyldi sjómannadagurinn vera viku síðar. Áður en lögin voru sett var     vikið frá reglunni í þau sex skipti sem hér verða talin. Árið 1963 var sjómannadagurinn haldinn á     annan í hvítasunnu. Árin 1965-1968 var haldið upp á daginn í maímánuði.     Árið 1986 var deginum frestað til 8. júní vegna sveitarstjórnarkosninga     í kaupstöðum og kauptúnahreppum laugardaginn 31. maí. Þegar almanakið     fyrir 1986 var prentað, var ekki vitað um frestunina og því var 1. júní     auðkenndur sem sjómannadagur það ár, en dagurinn hafði fyrst verið     tekinn upp í almanakið árið 1984. Hér fer á eftir listi yfir     dagsetningar sjómannadags fram að lagasetningunni 1987. Listinn er     fenginn frá Sjómannadagsráði.              1938   6. júní      1948   6. júní      1958   1. júní      1968  26. maí      1978  4. júní                1939   4. júní      1949 12. júní      1959   7. júní      1969   1. júní      1979 10. júní                1940   2. júní      1950   4. júní      1960  12. júní      1970   7. júní      1980   1. júní                1941   8. júní      1951   3. júní      1961   4. júní      1971   6. júní      1981 14. júní                1942   7. júní      1952   8. júní      1962   3. júní      1972   4. júní      1982   6. júní                1943   6. júní      1953   7. júní      1963   3. júní      1973   3. júní      1983   5. júní                1944   4. júní      1954 13. júní      1964   7. júní      1974   9. júní      1984   3. júní                1945   3. júní      1955   5. júní      1965 30. maí      1975   1. júní      1985   2. júní                1946   2. júní      1956   3. júní      1966 15. maí      1976 13. júní      1986   8. júní                1947   1. júní      1957   2. júní      1967 28. maí      1977   5. júní      1987 14. júní                   Þ.S.     26. apríl 2008.                             Almanak Háskólans</description>
Ótitlað
      <description>Já komið þið sæl og blessuð. Þá er þessi hvítasunnuhelgi liðin.Já við hjónin skruppum austu á Breiðdalsvík í fermingu hjá Aðalsteini Huga.Hann er dóttursonur Hönnu Þóru systur minnar.Fengum bara fínasta veður og hittum fullt af fólki og fengum alvega frábæra fermingarveislu. Við vorum 5 systkinin sem mættum á svæðið og pabbi og mamma.Það var bara gaman.Við fórum  í kirkju  í Heidölum og var það fínasta messa, freming og svo voru tvö börn skíð. Sandra Lind dóttir Grétu systir lét skíra drenginn sinn en hann heitir Hrannar Ingi.þannig að það var bara nóg að gera í fjölskyldunni.Ægir Ægisson varð 20 ára þann 10 maí en hann var bara heima að grilla og hafa það gott. Vildi það frekar en að koma með okkur. Við komum svo heim seint á annandag hvítasunnu.Fengum flott veður og afskaplega gaman að hitta fjölskylduna.kveðja til allra og takk fyrir góða helgi kæru vinir og fhölkskylda !!!!Árný Bára og Ægirp.s. Setti hérna inn smá um altarisgönguna vegna eldhúsumræðu um það dæmi  Altarisgangan er annað af tveimur sakramentum kirkjunnar (hitt erskírnin) þar sem leyndardómur trúarinnar kemur sterkt fram.Við göngum til altaris til þess að gera það sem Jesús bauð okkur þ.e að taka á móti víni og brauði í hans minningu. Leyndardómurinn er þessi að Jesús hefur lofað að vera sérstaklega nálægur þegar við komum saman til að endurtaka kvöldmáltíðina sem hann átti með lærisveinum sínum á skírdagskvöld.Við altarið hendum við af okkur öllum okkar byrgðum, öllum áhyggjum og raunum, fáum fyrirgefningu á öllu því ranga sem við höfum meðvitað og ómeðvitað gert, hugsað eða talað, göngum svo hrein á líkama og sál út í hversdaginn sem nýjar manneskjur, endurnærð til góðra verka.</description>
Ótitlað
      <description>Kærleikur er eitthvað sem þú og ég verðum að eiga. Við verðum að eiga hann vegna þess að andi vor nærist á honum. Við verðum að eiga hann vegna þess að án hans verðum við máttlítil og veikburða. Sjálfstraust okkar þverr án kærleika. Djörfung okkar hverfur. Við getum ekki horft  í trúfesti til heimsins. Við hverfum inn á við og förum að nærast á eigin eðlisþáttum, og smám saman eyðum  við  honum sjálf. Full kærleika erum við skapandi. Full kærleika höldum við óþreytandi árfam. Full kærleika og eingöngu í krafti hans getum við fórnað okkur fyrir aðra.    ( DAN GEORGE, INDÍÁNAHÖFÐINGI )  Kærleikurinn er ávallt skapandi, aldrei eyðandi. Í honum felst eina von mannsins.    ( LEO BUSCAGLIA )Tekið af kærleiksvef Júlla</description>
Ótitlað
      <description>Í  dag.     Dagurinn  í dag   er  dagurinn þinn.   Þú  getur gert við hann   hvað  sem þú vilt     Gærdaginn  áttir þú.   Honum  getur þú ekki breytt.   Um  morgundaginn veist þú ekki neitt     En  daginn í dag átt þú.   Gefðu  honum allt sem þú megnar   Svo  einhver finni í kvöld   að  það er gott að þú ert til   A  rosenbladt. Tekið af kærleiksvef Júlla</description>
Gleðilegt sumar
      <description> Gleðilegt sumar kæru vinir og vandamenn !Takk fyrir veturinnSumarkveðjaÁrný Bára og Ægir</description>
Sumardagurinn fyrsti
      <description>Sumardagurinn fyrsti 1949-2005          Trausti Jónsson          8.11.2006                   Tímasetning sumardagsins fyrsta    Sumardagurinn fyrsti er í almanakinu talinn annar fimmtudagur eftir  Leonisdag sem er 11. apríl hvert ár, eða með öðrum orðum fyrsti  fimmtudagur eftir þann 18. Hann er því aldrei fyrr en 19. apríl og ekki  síðar en þann 25. Á þessum tíma er hlýnun á vori komin vel í gang,  meðalhiti 25. apríl er 0,3 stigum hærri en 19. apríl.    Þó að svalt sé í veðri á þessum tíma er dagurinn vel valinn af  forfeðrunum því um þetta leyti skiptir á milli kaldari og hlýrri hluta  ársins. Sömuleiðis verða á þessum tíma árviss fjörbrot vetrarins í  háloftunum yfir landinu og sumarið tekur við, þá dregur að jafnaði mjög  úr afli veðurkerfa.  Aftur upp     Veðurfar á þessum árstíma    Dagarnir frá 20. apríl eða svo, til um það bil 10. maí, eru sá hluti  ársins þegar norðaustanátt er hvað tíðust á landinu og loftþrýstingur  hæstur. Slíku veðri fylgir gjarnan þurr næðingur syðra, oft með  sólskini, en dauft veður með smáéljahraglanda nyrðra. Mjög bregður þó  út af í einstökum árum.    Hæsti hiti á sumardeginum fyrsta    Hæsti hiti sem mælst hefur í Reykjavík á sumardaginn fyrsta frá 1949  að telja er 13,5°C. Það var árið 1998. Ámóta hlýtt var á sumardaginn  fyrsta 2004. Á sumardaginn fyrsta 1956 fór hiti ekki niður fyrir átta  stig allan sólarhringinn og níu sinnum hefur hámarkshitinn verið yfir  10 stigum. Kaldast var 1949, lágmarkshiti sólarhringsins -8,9°C, og  daginn áður var mikið hríðarveður um stóran hluta landsins og samgöngur  erfiðar.    Meðalhiti sólarhringsins hefur 12 sinnum verið undir frostmarki á  sumardaginn fyrsta í Reykjavík og frost hefur verið 21 sinni nóttina  áður. Það hefur gerst fjórum sinnum á tímabilinu frá 1949 að hiti hefur  ekki komist upp fyrir frostmark á sumardaginn fyrsta; 1949, en þá var  sólarhringshámarkið -2,0 stig, og 1951 var hámarkshiti á sumardaginn  fyrsta -0,8 stig. Árin 1967 og 1983 var hámarkshitinn 0°C.    Hæsti hiti sem mælst hefur á landinu á sumardaginn fyrsta frá 1949  er 19,8 stig. Það var á Akureyri 22. apríl 1976. Á sumardaginn fyrsta  1949 var frost um land allt, hæsti hiti á skeytastöðvum þann daginn  mældist á Hólum í Hornafirði -0,2 stig. Tveimur árum síðar var hæsti  hiti á landinu á sumardaginn fyrsta á Stórhöfða í Vestmannaeyjum 0,0°C.    Lægsti hiti á sumardaginn fyrsta frá 1949 mældist á Barkarstöðum í  Miðfirði 1988, -18,2°C. Á þessu sama tímabili hefur það aðeins sex  sinnum gerst að hiti hafi hvergi á landinu farið niður fyrir frostmark  aðfaranótt fyrsta sumardags og alltaf hefur landslágmarkið verið undir  1°C.    Úrkoma á sumardaginn fyrsta    Á þessum tíma árs eru þurrir dagar í meirihluta í Reykjavík (51%  daga) og aðeins um fjórða hvern dag blotnar vel á steini (úrkoma 1 mm  eða meiri).    Sumardagurinn fyrsti árið 2000 var hinn sólríkasti, sólskin mældist  í 14,6 klukkustundir. Oft er sólríkt þennan dag, í fjórðungi tilvika  hefur verið sólskin í meir en 10 klukkustundir. Flestir þessir  sólardagar eiga það þó sameiginlegt að þeir hafa verið kaldir og þá  oftast næturfrost. Aðeins einn af hlýjustu dögunum getur jafnframt  talist sólardagur, það var 2004. Hlýju dagarnir eru þó oftast  úrkomulitlir.    Vindur á sumardaginn fyrsta    Meðalvindhraði var 14,1 m/s sumardaginn fyrsta 1992 og 1962. Þetta  er hæsti meðalvindhraði þessa dags frá og með 1949. Hægviðrasamast var  1955, meðalvindhraði aðeins 0,7 m/s.    Frá 1961 hefur aðeins tvisvar verið alhvít jörð í Reykjavík að  morgni sumardagsins fyrsta. Hinn makalausa fyrsta sumardag 1949 var  alhvítt og snjódýpt talin 4 cm í Reykjavík.  Aftur upp     Nokkrar staðreyndir    Á tímabilinu 1949 til 2005 hefur tilviljun hagað því svo að  sumardagurinn fyrsti hefur verið áberandi kaldari þegar hann hefur  borið upp á þann 21. en aðra daga (1,0°C).Þetta stafar langmest af því að þennan dag árið 1949 var sólarhringsmeðalhiti í Reykjavík -6,6, eða 10,4 stigum undir meðallagi.Að meðaltali hefur verið hlýjast á sumardaginn fyrsta þegar hann hefur borið upp á 22. apríl (4,8°C).Skoða má kort sem sýna veður á hádegi alla daga frá 1949.Tekið af vef Veðurstofu Íslands</description>
Ótitlað
      <description>        Vertu ávallt glaður og hress í  bragði, það er svo margt  í lífinu sem  hægt er að gleðjast yfir, en það gerist ekki alltaf  að sjálfu sér, það er með gleðina eins  og annað í lífinu við þurfum  að leggja  okkur vel fram og vinna í hlutunum.Vertu duglegur við að  finna uppá og nýta allar þær stundir sem gefast  til að gleðjast og hlæja með vinum þínum.    Ef að þú ert hress og glaður  í bragði þá smitar það.   JJ        Tekið af kærleiksvef Júlla</description>
Trúin
      <description>      TRÚIN             Ef guðleg frækornin geyma vilt þú            þá glæddu í sál þinni heilbrigða trú            hún veitir þér ljós þegar leiðin er myrk            Hún léttir þér göngu með andlegum styrk</description>
      <description>"Örvæntu ekki, festu  ekki hugann við neikvæðar hliðar mála, vegna þess að það er ekki til  góðs. Beittu ætíð uppbyggjandi krafti. Trúðu því að hið góða komi, að  hið besta sé á leiðinni og svo mun verða."                                                                                                                                                                                                                                      White Eagle</description>
Bæn
      <description> Fékk þessa bæn senda í pósti frá góðri vinkonu. Falleg bæn sem mig langar að deila með ykkur.    Öllum getur liðið misjafnlega vel, en Guð er tilbúin að blessa alla jafnt á þann hátt sem hann einn kann.    Mér var falið að velja að minnsta kosti fjórar manneskjur sem mér er umhugað um að fengju blessun Guðs og þú ert ein/n af þeim.   Ég bið þig að senda þetta áfram til að minnsta kosti fjögurra annarra sem þú vilt að hljóti blessun og kærleika Guðs.    Þessi bæn er mjög kraftmikil, en bænin er ein sú besta gjöf sem við getum fengið. Hún kostar ekkert, en hún gefur okkur mikið.   Höldum áfram að biðja hvert fyrir öðru.           Guð ég bið þig um að blessa alla vini mína og ættingja, alla þá sem mér þykir vænt um og líka þá sem ég þekki ekki neitt, en þurfa á blessun þinni að halda.     Ég bið þig um að blessa þá sem eru að lesa þetta bréf, að þeir finni fyrir krafti þínum, kærleika og ljósi.     Viltu gefa þeim sem eru veikir eða sorgmæddir styrk og innri frið.   Viltu með kærleiks ljósi þínu og hlýju gefa þeim sem hafa lélega sjálfsmynd, endurnýjað sjálfstraust. Ég bið þig um að styðja þá og styrkja sem hafa lítið af heimsins gæðum.     Ég bið um blessun þína Guð til allra sem lesa þetta bréf, fyrir heimili þeirra, fjölskyldum og vinum. Viltu biðja verndarengla þína að vaka ávallt yfir þeim í öllu því sem þau taka sér fyrir hendur.      Með einlægu þakklæti.  </description>
Hvernig veit maður hverjum maður á giftast ?
      <description>     Rakst á þetta á vafri mínu um netheima.Hvernig veit maður hverjum maður á að giftast?       Nokkur bandarísk börn voru spurð spurninga um hjónabandið og samskipti                    kynjanna. Hér koma nokkur gullkorn.Hvernig veit maður hverjum maður á að giftast?"Maður  verður að finna einhvern sem hefur gaman af því sama og maður sjálfur.  Ef maður til dæmis hefur gaman af íþróttum verður hún að hafagaman af  því að þú hafir gaman af þeim og sjá um snakkið og dýfuna."Alan, 10 ára."Það  ákveður það enginn áður en hann verður fullorðinn hverjum hann ætlar að  giftast. Guð ákveður það allt löngu áður og maður kemst ekki að því  fyrr en það er orðið of seint."Kirsten, 10 ára.Á hvaða aldri er best að ganga í hjónaband?"Það er best að vera 23 ára því þá er fólkið búið að þekkjast í heila eilífð."Camille, 10 ára."Maður þarf ekki að vera á neinum sérstökum aldri, maður þarf bara aðvera bjáni."Freddie, 6 ára.Hvernig sér maður hvort ókunnugt fólk sé gift?"Maður verður bara giska út frá því hvort manni sýnist þau vera að æpa á sömu krakkana."Derrick, 8 ára.Hvað eiga foreldrar þínir sameiginlegt?"Bæði vilja ekki eignast fleiri börn."Lori, 8 ára.Hvað gerir fólk á stefnumótum?""Á  stefnumótum á að vera gaman því fólkið er að kynnast hvort öðru.Meira  að segja strákar geta haft eitthvað að segja ef maður hlustar nógu  lengi."Lynnette, 8 ára."Á fyrsta stefnumótinu lýgur fólk bara hvort að öðru og það er yfirleitt nóg til að það hafi áhuga á að hittast aftur."Martin, 10 ára.Hvað myndirðu gera ef þú færir á stefnumót sem endaði illa?"Ég  myndi hlaupa heim og þykjast vera dauður. Daginn eftir myndi ég hringja  í öll blöðin og láta þau skrifa um mig í andlátsfréttunum."Craig, 9 ára.Hvenær er óhætt að kyssa einhvern?"Ef hann er ríkur."Pam, 7 ára.Það er bannað með lögum ef maður er ekki orðinn átján ára og það er ekki sniðugt að lenda í einhverju veseni út af því."Curt, 7 ára."Reglan er sú að ef maður kyssir einhvern á maður að giftast honum og eignast með honum börn. Þannig á maður að gera."Howard, 8 áraHvort er betra að vera einhleyp(ur) eða í hjónabandi?"Það er betra fyrir stelpur að vera einhleypar en það er verra fyrir stráka. Það verður einhver að taka til eftir stráka."Anita, 9 ára.Hvernig væri heimurinn ef enginn giftist?"Það væri alla vega erfitt að útskýra alla þessa krakka."Kelvin, 8 ára. Hvernig á að viðhalda ástinni í hjónabandinu?"Maður á að segja konunni sinni að hún sé falleg, jafnvel þótt húnlíti út eins og vörubíll."Ricky, 10 ára.                                        </description>
Hjónakornin Árný Bára og Ægir 
      <description>                  Ungfrúin er 18 ára á þessari mynd.    Ætli þessi ungi herramaður sé ekki líka 18 ára                          </description>
Kærleikur 
      <description>Góð og hlý orð kosta lítið, en þau varpa oft ánægjugeislumá lífsbraut þess sem þau eru töluð til. Eða hefur blítt ávarp aldrei gróðursett ánægju og sigurvon í hjarta þínu?Tölum mjúklega hvert til annars; orð mýkja hið þjakandi mótlæti og öfugstreymi lífsins hjá þeim sem við elskum og þeirra sem Kristur hefur boðið oss að bera umhyggju fyrir .Þau græða viðkvæm tilfinningasár samferðamanna okkar á lífsleiðinni.Notaðu blíð orð að morgni; þau gera sambúðina skemmtilega og létta þunga dagsins.Notaðu blíð orð að kveldi. Áður en dagur rís getur einhver ástvina þinn hafa endað lífshlaup sittog þá er of seint að biðja hann fyrirgefningar.                                             John Stuart Mill.      </description>
Íslendingabók
      <description>              FaðirFriðrik Stefánsson     Fæddur 16. nóvember 1924              Elín Aðalheiður Þorsteinsdóttir    Fædd 9. september 1931                Árný Bára Friðriksdóttir     Fædd í Neskaupstað 26. ágúst 1960            Heimildir: Þjóðskrá, Mbl.18/2/97, Mbl.16/12/99, Pers.              Gréta FriðriksdóttirHanna Þóra Friðriksdóttir  19511954    Friðrik Friðriksson  1957    Ingibjörg M. Friðriksdóttir  1963    Stefán Friðriksson  1969    Steinunn Guðfinna Friðriksdóttir  1969    Aðalsteinn Friðriksson  1970    Bergþór Friðriksson  1970        Bjarni Sigmar Kjartansson   1949              Jóhannes Marteinn Pétursson  1953                    Elín Sigríður Jóhannesdóttir   1975                Ægir Kristmundsson   1956          Kvæntur     Fósturdóttir: Elín Sigríður Jóhannesdóttir, f. 23.12.1975.          Steinunn Bára Ægisdóttir  1983                    Ægir Ægisson  1988            </description>